09.04.1930
Neðri deild: 75. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2085 í B-deild Alþingistíðinda. (2776)
158. mál, skráning skipa
Frsm. (Jóhann Jósefsson):
Ég vildi aðeins taka það fram, að þessar upplýsingar hv. 4. þm. Reykv. voru gefnar í n. og þar teknar trúanlegar, en þar sem hv. þm. Borgf. kemur með upplýsingar í málinu, sem ganga í aðra átt, en eru einnig frá fyrstu hönd, vil ég, að n. verði gefinn kostur á að athuga málið nánar. Við 3. umr. málsins gæti n. svo lagt fram álit sitt, og þá hefðu þeir nm. óbundnar hendur, sem tóku orð hæstv. fjmrh. trúanleg, að af þessu myndi engan kostnað leiða.