01.04.1930
Neðri deild: 68. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2089 í B-deild Alþingistíðinda. (2804)
342. mál, kjöt til útflutnings
Frsm. (Lárus Helgason):
Ég hafði ekki hugsað mér að halda langa framsöguræðu. Málið er flestum hv. þdm. svo kunnugt, að þess er ekki þörf. Það er um mat á kjöti. Eins og mönnum er kunnugt, eru til lög um mat á saltkjöti, en þau ná ekki til kælds kjöts. Hér er bætt við ákvæðum um mat á frosnu kjöti og kældu. Tilgangur frv. er að vanda þessa vöru sem bezt og þar með að auka álit á henni, til þess að unnt verði að fá hærra verð fyrir hana framvegis. Nefndin hefir haft málið til athugunar, en ekki gert tillögur um neinar breytingar enn. Verið getur, að einhverjar brtt. verði bornar fram, en varla stórvægilegar. Fyrir hönd n. vil ég mæla með frv. og vona, að það gangi gegnum hv. deild sem greiðast.