03.04.1930
Neðri deild: 70. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2089 í B-deild Alþingistíðinda. (2807)

342. mál, kjöt til útflutnings

Frsm. (Lárus Helgason):

Við 1. umr. þessa máls gat ég þess, að n. mundi koma með smávægilegar brtt. við þetta frv., og þær eru hér fram komnar á þskj. 403. Þær eru í raun og veru litlar efnisbreytingar.

Við 2. gr. er ekki annað en að kveða skýrar á, þar sem sagt er, að læknir skuli tilkynna yfirmatsmanni misfellur. N. bætir við: „Ef mikil brögð eru að“. — Það koma nefnilega iðulega fyrir tilfelli, að skrokkar séu illa flegnir. N. gat ekki séð, að það gæti verið meining laganna að fara að hlaupa alltaf með það til yfirmatsmanns, heldur sjá svo um, að þeir gölluðu skrokkar, sem koma fram, verði ekki látnir ofan í þær tunnur, sem til útlanda eiga að fara.

Þá er brtt. við 3. gr. Eftir henni getur atvmrh., ef þess er óskað, löggilt sláturhús. Þótti n. rétt að bæta við: Samkv. till. yfirmatsmanns.

Þá er brtt. við 5. gr. Eins og frv. er nú, stendur, að yfirmatsmenn þessir skuli vera hæfilega margir.

N. fannst réttara að tiltaka töluna. Þeir hafa hingað til verið fimm, en samkv. þessu frv. verður a. m. k. að bæta einum við, vegna kælda kjötsins. En n. fannst, að ekki mundi þurfa að fjölga þeim meira en upp í sex.

Aðrar breyt. eru ekki frá n. hálfu. Eins og ég gat um við 1. umr., er þetta frv. fram komið vegna kælda og frosna kjötsins. Þar sem nauðsynlegt virðist að lögskipa mat á því kjöti, er sjálfsagt, að þetta frv. nái fram að ganga.