15.04.1930
Neðri deild: 83. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1065 í B-deild Alþingistíðinda. (285)

1. mál, fjárlög 1931

Forseti (BSv):

Ég mun leita afbrigða fyrir fjárl., en ef þau fást ekki, helzt dagskrá óbreytt. Annars er það svo, að þegar svona mörg mál eru á dagskrá, þá er erfitt að fá þau öll afgr. og gera alla ánægða, en til að hughreysta menn, skal ég lýsa yfir því, að þessi mál, sem nú eru á dagskrá, skulu tekin upp aftur á morgun.