05.04.1930
Efri deild: 70. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2172 í B-deild Alþingistíðinda. (2893)

132. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Halldór Steinsson:

Ég ætla ekki að fara að halda langa ræðu um þetta mál við 1. umr. þess, enda býst ég við, að það komi til þeirrar n., sem ég á sæti í.

Ég vil aðeins geta þess, að mér eru það mjög mikil vonbrigði að sjá þetta frv., sem nú er hingað komið, því að þetta er ekki nema skuggi af frv. í fyrra, eða eins og það kom hér fram í Ed. Aðalkrafa frv., um rekstrarlánadeildina, hefir hv. Nd. tekið í burtu og ég lít svo á, þegar um þessar tvær deildir er að ræða, lánadeild til skipakaupa og rekstrarlánadeild, þá sé hin síðarnefnda ennþá þýðingarmeiri, og ég er viss um það, að ef frv. hefði getað náð samþykki þingsins í þeirri mynd, hefði sú deild komið að miklu meiri notum.

Ég vildi aðeins játa þessi ummæli fylgja frv. frá 1. umr., og vona ég, að hv. meðnm. mínir geti tekið vel í þetta mál með mér og orðið mér sammála að þessu leyti.