15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2177 í B-deild Alþingistíðinda. (2904)

132. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Jón Baldvinsson:

Ég sé nú satt að segja enga ástæðu til þess að hraða þessum málum svo mjög. Ég hefi að vísu heyrt því fleygt, að stj. vilji fresta fundum þingsins þegar fyrir páska, eða jafnvel annað kvöld, en hitt er annað mál, hvort þingmenn ganga inn á það, að samþykkja tíu til tuttugu lög á síðasta klukkutímanum, sem þingið starfar. Ég er því í rauninni mótfallinn því, að þessum málum sé hraðað svo mjög, enda er hér ekki um nema örfáa daga að ræða, sem þingið stæði lengur, ef þessi mál ættu að fá forsvaranlega athugun og afgreiðslu.