15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2178 í B-deild Alþingistíðinda. (2907)
132. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Jón Baldvinsson:
Þessi ummæli hv. 3. landsk. verða vel skiljanleg, þegar þess er gætt, að hann var vitanlega undir sömu sökina seldur, meðan hann var ráðh., en annars sé ég litla ástæðu til þess að taka upp þessa venju. Ég sé t. d., að mörgum málum er sleppt, sem gætu verið afbrigðalaust á dagskrá í dag, en aftur leitað afbrigða um önnur, sem vel gætu beðið þangað til á morgun eða til laugardags. Yfirleitt er þessi aðferð óviðfelldin og ef til vill varhugaverð. Þetta er að vísu ekkert nýtt. Ég man t. d. eftir því, að þegar Jón heit. Magnússon var ráðh., þá hafði hann þann sið, er á leið þingtímann, að hvísla að þm., að nú væri Esja að fara, nú færi Nóva næstu daga o. s. frv. Þetta var gert í þeim tilgangi að fá þingmenn til að hespa þingstörfin af og halda heimleiðis. Síðan hefir sama sagan endurtekið sig árlega. Alltaf er verið að hrella þm. með áætlunarferðum strandferðaskipanna. Stundum hafa jafnvel verið haldnir fundir í sameinuðu þingi til þess að tilkynna þm. skipaferðir, sem þeir lesa um dags daglega í blöðunum.