16.04.1930
Neðri deild: 84. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1074 í B-deild Alþingistíðinda. (298)

1. mál, fjárlög 1931

Héðinn Valdimarsson:

Það hefir verið rætt í fjhn., hvort greiða skyldi Páli Torfasyni kröfu hans fyrir milligöngu hans við enska lánið. Það varð að samkomulagi, að þótt krafan væri ekki viðurkennd, þá fengi hann nokkur þúsund krónur, sem ættu að flytjast í fjárl. En þegar heyrðist, að fjárl. yrðu ekki opnuð hér, var samþ. áskorun til fjmrh. um að greiða P. T. þetta fé. Ég var einn þeirra, sem skrifuðu undir þá áskorun, og vil ég ekki láta málið fara svo út úr d., að ég segi ekki frá því í aðaldráttum.

Það liggur fyrir skýrsla frá P. T., og kemur þar margt misjafnt á daginn. Sést þar, að íslenzk stjórnarvöld hafa hagað sér á ýmsan annan hátt en skyldi í sambandi við lántökuna. Þessi skýrsla ber það líka með sér, að Páll Torfason hefir ekki fengið nema nokkurn hluta þess, er honum bar. 22 þús. kr. af hans hlut hafa gengið til Jóns Sveinbjörnssonar konungsritara, og er látið svo heita, að Páll Torfason hefi greitt honum þetta upp í skuld, en upplýst er, að P. T. skuldaði honum ekkert. Auk þessa er líklegt, að um 4.000 kr. hafi gengið til konungsritarans. Ég verð að láta í ljósi, að ég tel mjög óviðeigandi, að maður, sem er ritari konungs Íslands, fáist við slíkt mál, og sízt á þennan hátt: Ástæðan til þess, að ég vil að Páll Torfason fái þessa uppbót, er sú, að sýnt er, að hann hefir verið féflettur af félögum sínum.