05.04.1930
Neðri deild: 72. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2252 í B-deild Alþingistíðinda. (2984)
369. mál, héraðsskóli
Magnús Guðmundsson:
Ég skal segja hv. þm., að ég mun koma norður, þegar mér sýnist, og á herskipi, ef ég vil, hvort sem honum líkar vel eða illa. (HJ: Mér vel). Annars hefi ég aldrei komið á herskipi til Hvammstanga; ég fór þaðan á herskipi, það er satt. (HJ: Og herskipið varð að bíða í tvo tíma, meðan verið var að gera við úrið hans). Ætlar hv. þm. endilega að bera söguna þannig norður, að ég hafi ætlað að greiða atkv. móti. þessu máli? (HK: Ekki skil ég í því!). Það gæti kannske líkzt málsflutningi hans. Ég skora á hann að tilgreina, hvaða síma hann var að tala um og hvaða loforð ég hafi gefið og hvað ég hafi svikið. Og hvað á hann við með ósanngirni í vegamálum? Það er bezt, að hv. þm. fái að standa við þessi gífuryrði sín, eða borði þau sjálfur. (ÓTh: Já, hvaða síma er verið að tala um?).