15.02.1930
Neðri deild: 28. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2261 í B-deild Alþingistíðinda. (3010)

46. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Frsm. meiri hl. (Halldór Stefánsson):

Ástæðurnar fyrir þessu frv. hafa verið upplýstar bæði við umr. um málið í fyrra, og eins við framsögu þess við 1. umr. Þar sem meiri hl. n. leggur til, að frv. sé samþ. óbreytt, finn ég ekki ástæðu að tilefnislausu til að hefja umr. um einstakar greinar þess.

Nál. minni hl. hefir ekki verið útbýtt ennþá, svo að ég get ekkert um það sagt, en sjálfsagt verður gerð grein fyrir afstöðu hans síðar á fundinum.

Um mig sjálfan er það að segja, að ég hefi eins og í fyrra í raun og veru fyrirvara um þetta mál, hinn sama og þá, að ég gæti hugsað mér aðrar leiðir til að bæta úr því, er ég tel áfátt í skipun þessara mála, en ekkert slíkt liggur fyrir ennþá, og sé ég ekki ástæðu til að ræða um það frekar.