15.02.1930
Neðri deild: 28. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2261 í B-deild Alþingistíðinda. (3011)

46. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Frsm. minni hl. (Hannes Jónsson):

Ég býst við, að við þessa umr. þýði ekki að halda uppi löngum umr., því að eftir þeim undirtektum, sem frv. fékk í fyrra, má búast við, að það nái samþykki meiri hl., a. m. k. á meðan ekki koma fram brtt. við það.

Ég vil gjarnan sjá það enn við þessa umr., hvort hv. þdm. eru þess reiðubúnir að leggja á ríkissjóð 35 þús. kr. ný útgjöld, sem leiðir af þessu frv. Ef það reynist enn svo, að hv. þdm. eru þessa reiðubúnir, geri ég ráð fyrir, að við 3. umr. muni ég koma fram með brtt., sem sé byggð á þessum sömu útgjöldum fyrir ríkissjóð, en aftur á móti sé leiðrétt enn frekar en með þessu frv. það misrétti, sem hefir átt sér stað milli fjárveitinga til barnakennara í sveitum við fjárframlög til barnakennara í kaupstöðum.

Ég hefi áður tekið það fram, undir umr. um þetta mál í fyrra, að ég teldi launin vera orðin með þessum ákvæðum óþarflega há, og svo há, að við stæðumst ekki við að borga öðrum starfsmönnum hins opinbera í sveitunum hlutfallslega jafnhá laun, en fyllsta samræmis verður að gæta í þessum efnum. Það getur ekki gengið svo til lengdar, að störfum sé hlaðið á opinbera starfsmenn í sveitum án þess að laun þeirra hækki nokkuð frá því, sem var fyrir svo sem 20 árum. Það getur ekki gengið, að hreppstjórar hafi ekki nema 100–200 kr. fyrir öll þau störf, sem þeir inna af hendi allt árið, og það oft á þeim tíma, sem þeim er dýrastur og óhentugastur til að vera frá heimilum sínum. Hér er því ekki aðeins að ræða um fjárframlög til þessara starfsmanna, heldur verða menn að hafa það hugfast, að þá verður að auka laun fleiri manna.

Ég skal gjarnan viðurkenna, að ákvæði laganna um ýmislegt þessu viðvíkjandi eru óeðlileg, t. d. um aldursuppbót kennara í sveitum. Þeir þurfa að bíða í 18 ár eftir fullri aldursuppbót, en aðeins 15 ár í kaupstöðum, þar fá þeir 3. hvert ár uppbót, þangað til þeir hafa eftir 15 ár fengið fulla aldursuppbót.

Ég býst við, að við 3. umr. komi ég fram með brtt um þetta efni, þannig að aldursuppbót barnakennara í sveitum verði 3. hvert ár 60 kr. fyrir 50 kr., þar til hún er orðin 300 kr.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál. Ég býst við, að öllum hv. þm. sé fyllilega ljóst, að hverju stefnir með þessu, og séu sér meðvitandi um, að sömu ákvarðanir verði einnig að taka um launahækkun annara opinberra starfsmanna í sveitunum.