15.02.1930
Neðri deild: 28. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2262 í B-deild Alþingistíðinda. (3012)

46. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Ásgeir Ásgeirsson:

Ég þakka hv. meiri hl. n. fyrir góðar undirtektir undir þetta mál, og hv. minni hl. og frsm. hans, sem eru eitt og hið sama, vil ég benda á það, að ýms þegnskyldustörf, svo sem oddvita- og hreppstjórastörf, eru ekki sambærileg við störf barnakennara. Þegar meta skal laun barnakennara, á að bera þau saman við laun fastra starfsmanna, sem verða að lifa á launum sínum. En um hina er miðað við allt annað. Og þörfin á að hækka laun þeirra er óskylt mál því, hvernig tekið skal undir þetta frv. Störf þessi liggja ekki á sama sviði. Annað á að vera algert uppihald, en hitt eru að miklu leyti heiðurs- og þegnskyldustörf.

Um væntanlega brtt. ætla ég ekki að tala fyrr en hún er komin fram.