17.02.1930
Efri deild: 27. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2276 í B-deild Alþingistíðinda. (3037)
117. mál, jarðræktarlög
Jón Baldvinsson:
Það er langt frá því, að ég ætli að leggjast á móti þessu frv. núna við þessa umr. a. m. k., því að ég álít sjálfsagt að taka þetta til yfirvegunar, og það kemur auk þess til n., þar sem ég á sæti. Þó langar mig nú þegar til að láta það koma fram í umr., sem ætti að koma við 1. umr., en það er, hvort hv. flm. hafa gert sér hugmynd um, hve mikil útgjöld þetta yrðu fyrir ríkissjóð, því að þótt frv. sé lítið lesmál, eins og hv. flm. komst að orði, er þetta afarstórt mál, sem hér er á ferðinni, því að þegar talað er um að styrkja menn til að byggja þurrheyshlöður, þá er kannske talað um að styrkja hvern einasta bónda á landinu.
Ég held, að það hafi verið enskur stjórnmálamaður, sem sagði, að það væri hægt að koma öllu fram, ef menn aðeins fyndu réttu heitin á því, og það er rétt. En þau orð, sem hv. flm. viðhafði, þau hefðu sjálfsagt verið tekin talsvert alvarlega, ef þau hefðu komið frá jafnaðarmönnum, sem vanalegast eru kallaðir byltingamenn. En það, sem hv. þm. óskaði eftir, var í raun og veru það að gera byltingu í heilum atvinnuvegi í skjótri svipan. Það er nú kannske ekki svo auðvelt að gera þetta, en það er í rauninni meira, sem hv. flm. fer fram á, heldur en við jafnaðarmann gagnvart þjóðfélaginu. Við förum ekki fram á neina skyndibyltingu, eins og hv. 6. landsk. fer fram á að gera.
Ég vil, að þetta sé athugað, saman borið við þær breyt., sem við förum fram á, og að hugsað sé til þess, sem hv. þm. vill færa við þann atvinnuveg, sem hann vill auka og efla. En annars hlýtur slíkur aukinn styrkur til jarðræktarinnar náttúrlega að draga úr því, að hægt verði að gera nokkrar framkvæmdir við sjóinn, því að á síðustu árum fer geysimikið fé í styrk til bænda, bæði beint og óbeint, til búnaðarfélaga, til Byggingar- og landnámssjóðs o. fl. o. fl., auk þess sem búið er að samþykkja handa landbúnaðinum stóran banka, og við í dag afgreiddum 220 banka handa bændum. þ. e. a. s. það er aðeins við 2. umr. málsins, en ég vona, að frv. verði afgr. til fulls. Ég vil veita bændum og búnaði allan þann styrk, sem mögulegt er, og hygg ég, að ég hafi sýnt það áður hér á þingi. En ég vil þó, þegar búið er að hlaða svona miklum styrkjum og fjárframlögum á sveitirnar, að farið sé að athuga, hvort það muni ekki verða til þess að draga úr þeim styrk, sem óhjákvæmilega þarf að veita hinum aðalatvinnuvegi landsins, sjávarútveginum. til lendingarbóta, hafnargerða o. fl., án þess að farið sé fram á, að á honum sé gerð sú höfuðbylting, sem við jafnaðarmenn höfum verið að tala um, að þyrfti að gera á þjóðfélaginu. En það, sem ég vildi spyrja hv. flm. um, var sérstaklega þetta, hvort honum hefði dottið í hug sú fjárupphæð, sem þetta myndi kosta ríkissjóð. Það er að vísu sennilegt, að þetta mundi ekki koma til framkvæmda fyrr en á árinu 1931; það er víst aldrei venja, svo að það mætti taka tillit til þess á þeim fjárlögum, sem nú er verið að semja fyrir 1931. Annars væri líka fróðlegt að spyrja, hvort útgjöldin ættu að koma á þetta ár. Ég þarf í rauninni ekki um annað að spyrja.