13.03.1930
Efri deild: 50. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2292 í B-deild Alþingistíðinda. (3051)
117. mál, jarðræktarlög
Jón Baldvinsson:
Ég er það vel sammála hv. þm. Snæf. um þetta mál í eðli sínu, að við þurfum ekki að deila um það. En ég er honum þó ekki sammála um það, að nauðsynlegt sé að fara með þetta mál til fjvn. Því að það hafa legið ýms mál fyrir þinginu, þar sem farið var fram á stóraukin útgjöld úr ríkissjóði, en þó ekki farið með þau til fjvn. Er skemmst á að minnast, að fyrir nokkrum dögum var samþ. að leggja fram úr ríkissjóði í áhættu nálega 5 millj. króna, og ég minnist þess ekki, að leitað væri til fjvn. deildanna. Mér finnst því varla taka því að fara að hengja smáþjófana, fyrst þeir stóru hafa sloppið.
En flm. málsins, hv. 6. landsk., vildi ég aðeins benda á það, að hann hafði einmitt í Íslandsbankamálinu og Útvegsbankamálinu getað tryggt tekjur handa hlöðunum sínum, ef hann hefði fallizt á till., sem kom fram um það, að vextir af nýju hlutafé í Útvegsbankanum gengju í ríkissjóðinn strax, en ekki til þess að borga gömul töp Íslandsbanka. En þessi hv. þm. mat þá meira að flaustra því máli af. (JKr: Og að styrkja sjávarútveginn). Ja, það er nú stórt spursmál, hvort sjávarútveginn hefir munað ákaflega mikið um þetta, en hinsvegar hefði fjárhagsleg afkoma ríkissjóðs ekki versnað, þótt hann hefði fengið 90 þús. kr. af þessu og lagt 70–90 þús. kr. í hlöðurnar.
En því verður ekki hægt að neita, sem við hv. þm. Snæf. og hæstv. fjmrh. höfum haldið fram, að það eru komnir svo margir fastir og háir útgjaldaliðir á ríkissjóð, sem ekki verða skornir niður, nema ýtrasta nauðsyn komi til. Finnst mér því uppástunga mín það heppilegasta í þessu máli, að bíða með þetta og sjá, hverju fram vindur um afgreiðslu mála í hv. Nd. Og ef við í þinglokin sjáum fram á sæmilega afkomu, þá væri hægt að taka málið fyrir og afgreiða það.
Eitt er enn að athuga í þessu máli. Ég er ekki viss um, að það sé nægilega tryggt, að þær byggingar, sem reistar verða samkv. þessu frv., verði þess virði, að þær séu styrktar. Ég hefi víða farið um byggðir landsins, og það er sannast að segja hörmung að sjá, hvernig er víða frá slíkum byggingum gengið. Steinhús eru þar víða ópússuð og vatn gengur hiklaust í gegnum þau, og það er kannske aldrei hægt að laga þetta. Vatnið étur úr veggjunum, svo að jafnvel koma göt á. Þetta hefi ég séð allvíða. Húsabyggingar, þar sem svo er ábótavant um frágang, tel ég ekki rétt að styrkja. Líkt má segja um frágang á grunni húsanna. Gömlu hlöðurnar voru oft illa gerðar að þessu leyti, svo að vatn hljóp í þær. Yfirleitt eru menn ekki óvanir að byggja af lítilli þekkingu og litlum efnum.
Það gæti því verið eitt stærsta atriði í þessu máli, ef til framkvæmda kæmi, að haft yrði strangt eftirlit með byggingum, miklu strangara en gert er ráð fyrir eftir gildandi lögum. Það á að vísu að reisa þetta eftir fyrirmyndum, en það þarf sannarlega miklu meira að gera. Það þarf að tryggja, að þeir vinni þetta verk, sem kunna. En oft eru þeir menn fengnir til slíkra starfa, sem lítt kunna, svo að ýmislegt verður hrákasmíð, sem endist illa.