12.04.1930
Neðri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2302 í B-deild Alþingistíðinda. (3066)
117. mál, jarðræktarlög
Frsm. (Lárus Helgason):
Það er fátt, sem sparar meira vinnukraft í sveitum en að hafa góðar hlöður, á móti því að verða að hafa hey úti. Þess vegna er þetta frv. fram komið. Landbn. hefir ekki getað fallizt á þetta frv. eins og það kom frá Ed., vegna þess að hún áleit, að það mundi auka útgjöld ríkissjóðs of mikið.
En hún áleit, að mikil hjálp gæti orðið að frv., þó að breyt. væru gerðar á því frá því, sem það er nú. Þess vegna hefir n. borið fram brtt., sem sjá má á þskj. 478. Breytingarnar eru í stuttu máli þær, að í staðinn fyrir 75 aura á dagsverk komi 50 aurar, og í staðinn fyrir 750 kr., sem gat komið til mála, að einstaklingi yrði greitt fyrir hlöðu, komi 500 kr., og í staðinn fyrir 70 þús. kr. árlega komi 50 þús. kr. sem hámark. N. hefir einnig hert dálítið á skilyrðunum með hlöðurnar, sem veita á styrk til samkv. þessum lögum, þannig að hún vill leggja meiri áherzlu á, að hlöðurnar séu vel byggðar, eins og sjá má, ef frv. er borið saman við nál. N. leggur sem sé til, að þær hlöður, sem styrk má veita til, séu eingöngu með steinlímdum veggjum eða steinsteypu, en í frv. sjálfu er styrkurinn bundinn því skilyrði, að hlöðurnar séu byggðar eftir fyrirmynd Búnaðarfélagsins að allri gerð og formi, en ekki bundið eins við það efni, sem þær væru byggðar úr. Þetta þótti n. rétt að taka skýrt fram, til þess að þær framkvæmdir, sem styrktar verða eftir þessum lögum, verði varanlegar til frambúðar.
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um frv., en vona, að hv. d. taki því þannig, að það megi ganga greiðlega fram.