14.04.1930
Neðri deild: 79. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2306 í B-deild Alþingistíðinda. (3075)
117. mál, jarðræktarlög
Bjarni Ásgeirsson:
Ég skildi ekki, hvað hv. 2. þm. Skagf. átti við með því, að brtt. mínar ættu að vera nokkurskonar uppbót til þeirra, sem hefðu verið sviptir jarðræktarstyrknum. Ég veit ekki til þess, að nokkur maður hafi verið sviptur honum. L. eru í gildi og eru framkvæmd enn. Um dagsverkabreytinguna ætla ég ekki að fara að rífast nú. Það er þegar búið að rífast nóg út af henni, og verður sennilega gert meira síðar.
Till. mín fer fram á það, eins og ég hefi reyndar tekið skýrt fram áður, að samrýma þennan styrk, sem hér er um að ræða, öðrum greiðslum í sambandi við jarðræktarlögin, þannig að framkvæmdir hvers árs séu látnar ráða því, hve mikið er greitt úr ríkissjóði í þessu skyni. Það nær engri átt að vera að gefa mönnum tyllivonir um styrk, þar sem hann getur brugðizt hvenær sem er, vegna þess að ekki má fara yfir ákveðið hámark.