14.04.1930
Neðri deild: 79. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2306 í B-deild Alþingistíðinda. (3076)
117. mál, jarðræktarlög
Magnús Jónsson:
Ég hefi þegar látið í ljós vafa minn um það, hvort brtt. eins og þessi gæti komizt að.
Í frv., eins og það kom frá hv. Ed., var styrkhámarkið til hlöðubygginga bundið við 75 þús. kr. Þessi deild samþ. að færa hámarkið niður í 50 þús. kr. og sýndi þar með, að hún álítur 75 þús. kr. of mikið. Nú kemur svo fram till., ekki um að hækka hámarkið aftur í 75 þús. kr., heldur um það að afnema allt hámark.
Segjum, að 3.000 kr. styrkveiting væri felld. Væri þá heimilt að bera fram till. um 3.500 kr. styrkveitingu í sama skyni? Ég fyrir mitt leyti efast um, að þingsköp heimili það. A. m. k. finnst mér það harla einkennilegt að bjóða mönnum, sem hafa hafnað 75 þús. kr. hámarki sem of háu, upp á það að samþ. nú að veita ótakmarkaðan styrk í þessu skyni. Mér finnst fyrri samþykkt útiloka, að slíkt geti komið til mála. Auk þess fannst mér n. færa góðar og gildar ástæður fyrir því við 2. umr., að nauðsynlegt væri að setja hámark um þennan styrk til hlöðubygginga.