14.04.1930
Neðri deild: 79. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2307 í B-deild Alþingistíðinda. (3079)
117. mál, jarðræktarlög
Hannes Jónsson:
Ég vil einungis benda hv. þd. á það, að ef brtt. hv. 2. þm. Skagf. verður samþ., þá mun það óhjákvæmilega valda miklu ósamræmi í úthlutun styrksins frá ári til árs. Í betri árum er meira byggt, og verður styrkurinn þar af leiðandi lægri á hverja hlöðu. En einmitt í góðu árferði geta fátækir menn byggt hlöður, og fá því minni styrk en þeir efnaðri, sem byggja ekkert síður í lakari árum. Afleiðingin verður því sú að fátækir menn fá minni styrk en þeir efnaðri. Af þessum ástæðum tel ég sjálfsagt að samþykkja brtt. hv. þm. Mýr., en ef hún verður samþ., þá ætti skrifl. brtt. ekki að komast að.