30.01.1930
Neðri deild: 9. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2332 í B-deild Alþingistíðinda. (3131)
32. mál, vegalög
Jón Auðunn Jónason:
Það má segja, að mörg högg séu reidd að samgmn. og upp á mörgu stungið til þess að draga ráðin úr hennar höndum. Ég býst við, að þeir, sem vilja láta stjórnina ráða yfir þinginu, vilji láta stjórnina ráða hér. En um þessi mál er það að segja, að illt er að gera breytingar að svo stöddu. Það er þegar með lögum ákveðið mikið af nýjum vegum, en fé af skornum skammti. Þess vegna hefir vegamálastjóri jafnan lagzt á móti slíkum viðbótum á þjóðvegakerfinu, meðan hann sér ekki fram á, að hægt sé að fullnægja því, sem búið er að lofa.
Það kom glöggt í ljós á þingi 1927, að margar breytingar, sem bornar voru upp af samgmn., fóru svo í d., að þær voru felldar, af því að menn sáu ekki fram á, hvenær þær gætu komið til framkvæmda, og vildu því ekki lögfesta þær strax.
Allir vita, að hvergi er meiri þörf á vegum en í Ísafjarðarsýslu. Vegna hagsmuna kjósenda minna hefi ég borið fram till. í þessu efni, en engin tök séð á, að hægt væri að vinna að þeim á undanförnum árum. Eins og allir vita, er Ísafjörður einn af stærstu kaupstöðum landsins, en þar er mjög lítið uppland, erfitt til ræktunar og afarerfitt um aðflutninga á landbúnaðarafurðum. Aftur á móti er í Önundarfirði eitt af fegurstu landbúnaðarhéruðum, en lítill markaður þar fyrir landbúnaðarafurðir. Í vegamálunum sem öðrum málum verður að sníða þjóðinni stakk eftir vexti. Það hefir mikið verið unnið að vegabótum undanfarin ár og mikil verkefni liggja fyrir á næstu árum. En þegar því er lokið, sem fyrir liggur og þegar búið að ákveða, að gert verði á næstu árum, þá fyrst er ástæða til að samþykkja nýjar viðbætur við þjóðvegakerfið.
Á þessu stigi málsins segi ég ekkert um afstöðu mína gagnvart hinum ýmsu till., sem hér liggja fyrir, en mun í nefndinni gera það, sem mér finnst réttast eftir ástæðum.