30.01.1930
Neðri deild: 9. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2340 í B-deild Alþingistíðinda. (3137)
32. mál, vegalög
Flm. (Magnús Torfason):
Mér þykir málefni þetta í nokkurt óefni komið og eigi tekið með þeirri alvöru sem vera skyldi. Ætti þó engum að blandast hugur um nauðsyn þessa máls. Mestu máli skiptir að finna réttan grundvöll. Því hefir verið haldið fram, að brtt. við vegalögin, sem bornar hafa verið fram á undanförnum þingum, gangi út á aukin fjárútlát úr ríkissjóði. En þetta er hinn mesti misskilningur. Vegalögin eru einungis áætlun um vegagerð ríkissjóðs. Ég skal nefna sem dæmi, að í vegalögunum frá 1907 er ákvæði um, að veg skuli leggja að Geysi. Þessi vegur er ekki fullgerður enn. Fjárveitingavaldið kveður á um það, hvaða vegir skuli vera látnir sitja fyrir, þegar til framkvæmda kemur. Með þessu er verið að fyrirbyggja, að hvert hérað oti sínum tota, og að greiða fyrir samræmri og réttlátri úrlausn þessara mála, og má því sjá, að engin goðgá getur það talizt, þótt fram komi till. um endurskoðun eða breytingar á þessari áætlun. Vegalögin eru nú síðan 1924, svo að afturhald mætti það teljast, ef liði á löngu áður en farið væri að breyta þeim. Ég skal líka benda hv. nefnd á það, að vegalögin 1924 voru einmitt sett vegna þess, að þáverandi ríkisstjórn sá fram á það, að því lengur sem dregið væri að breyta vegaáætluninni frá 1907, því fleiri kröfur um nýja vegi kæmu fram, og að þegar vegal. væru komin á, myndu sennilega líða nokkur ár, þangað til farið væri að breyta þeim á ný. Nú býst ég við, að hv. nefnd skilji það, að þörfin fyrir bætt vegakerfi hefir aukizt a. m. k. eins mikið frá 1924 til 1930 eins og frá 1907 til 1924, vegna þess að eftir 1924 er fyrst almennt farið að nota hin nýtízku flutningatæki, bílana, á vegum hér á landi. Fyrir 4 árum hefði sennilega fáum komið í hug, að nú væri kominn akfær bílvegur frá Borgarnesi til Akureyrar. Þörfin hefir knúð þá vegabót fram, en í vegalögum er ekkert á hana minnzt. Af þessu má sjá, hversu mikil breyting er á orðin, og þess vegna ætti að gjalda varhuga við að spyrna á móti nauðsynlegum endurbótum á vegalöggjöfinni, eins og þessar till. okkar fara fram á.