30.01.1930
Neðri deild: 9. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2342 í B-deild Alþingistíðinda. (3140)
32. mál, vegalög
Bernharð Stefánsson:
Ég verð nú að segja, að fremur virðist draga til sátta í þessu máli, og er það vel farið. Tveir af nm. hafa nú látið þau orð falla, að ég hlýt að bera meira traust til hv. nefndar nú en í upphafi þessarar umr. Hv. þm. Barð. lýsti því yfir, að hann vildi, að Alþingi efndi gefin loforð, og tel ég það ótvíræða framför, ef það mætti takast í framtíðinni. Þá taldi hv. 4. þm. Reykv., að færð hefðu verið rök fyrir flestu því, er á hv. samgmn. hefði verið borið út af vinnubrögðum hennar á þinginu í fyrra. (SÁÓ: Ég sagði, að færð hefðu verið rök gegn ásökunum hv. þm.). Hv. þm. sagði fyrir, en ekki gegn, og getur það ekki skilizt á annan veg en að hv. þm. játi brot nefndarinnar og iðrist. Þannig hafa hlutar n. sýnt ótvíræðan betrunarvilja, og má þá frekar vænta árangurs af starfi hennar. Þess vegna ætla ég nú að falla frá þeirri ósk minni; að þetta mál verði tekið af samgöngumálanefnd og fengið í hendur sérstakri nefnd. Sérstaklega vil ég treysta hv. n. til að líta með sanngirni og skilningi á kröfur míns héraðs hvað þessi mál snertir. (JAJ: Þá er öllu bjargað!). O-nei, ekki þarf það að vera, en hver er sjálfum sér næstur, og það verð ég að kannast við, að gramastur hefi ég orðið út af meðferð hv. n. á vegamálum okkar Eyf., því við viljum hafa rétt okkar til móts við önnur héruð landsins.