01.04.1930
Neðri deild: 68. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2347 í B-deild Alþingistíðinda. (3146)

32. mál, vegalög

Hannes Jónsson:

* Eins og hv. frsm. meiri hl. samgmn. tók fram, var n. ekki sammála um afgreiðslu þessa máls; við hv. þm. Barð. gátum ekki fallizt á þá afgreiðslu, sem þskj. 346 gerir ráð fyrir. Ég tala þó ekki fyrir okkur báða, því að við erum heldur ekki alveg sammála, heldur tala ég aðeins fyrir eiginn reikning.

Ég get þá byrjað á því að segja, að í sumum atriðum var ég algerlega sammála meiri hl. n. Það er Fljótshlíðarvegur, Hafnarbraut, Eyjafjarðarbraut að Kristneshæli, og Kópaskersbraut. Aðeins hefi ég viljað fara meira eftir till. vegamálastjóra um Fljótshlíðarveginn, því að vegamálastjóri leggur eindregið til, að sá vegur verði tekinn í þjóðvegatölu með því skilyrði, að Rangæingar taki þjóðvegakafla þann, sem niður er felldur, í tölu sýsluvega. (JAJ: Það er gert í till. n.). Já, um Landbrautina er það að segja, að hún er felld úr þjóðvegatölu, en þar með er ekki sagt, að hún sé sýsluvegur orðinn; til þess að tryggja það, þarf að setja það að skilyrði. (MT: Þetta kemur af sjálfu sér). Það má vera, að svo sé, en þó tel ég réttara að taka þetta fram.

Um veginn frá Ísafirði að Önundarfirði vorum við líka sammála, en meiri hl. hefir bætt þar við vegarkafla frá Hnífsdal að Ísafirði, og því fylgdi ég ekki. Ég álít, að ef taka á slíka kafla í tölu þjóðvega, þá sé torvelt að finna takmörkin. Það verða óendanlega margar kröfur, sem koma fram, sem ómögulegt er að neita, verði þessi kafli tekinn í þjóðvegakerfið. Og ég sé satt að segja ekki, hvernig hv. meiri hl. fer þá að neita um suma af þeim vegaköflum, sem farið er fram á hér í brtt. En einhver samkvæmni verður að vera í till. nefndarinnar um þetta efni. Fyrir utan það, hvað þetta er varhugavert, þá fæ ég ekki skilið, að það skipti miklu fyrir héraðið þarna norður frá að fá þennan kafla upp tekinn í þjóðvegakerfið. Og mér skildist meira að segja hv. frsm. meiri hl. ekki vera svo sérstaklega áfram um það.

Ég álít, að við ættum frekar að halda áfram með Vesturlandsveginn frá Önundarfirði eitthvað í áttina við það, sem farið er fram á í brtt., sem lá fyrir n., en ekki að taka þennan kafla, ef ekki á að taka meira og minna af þeim vegum, sem nú að sjálfsögðu kallast innanhéraðsvegir.

Þá vil ég sérstaklega minnast á till. hv. meiri hl. um Landbrautina. Um þennan veg er það að segja, að vegamálastjóri telur engu meiri ástæðu til að taka hann upp en fjölda annara innanhéraðsvega. Og því fylgir hætta, að taka einstaka vegi út úr, eins og ég hefi rækilega bent á.

Viðvíkjandi Skeiðabrautinni er ég ekki nógu kunnugur staðháttum. En ég er hræddur um, að það kunni að hafa eitthvað svipaðar afleiðingar í för með sér eins og með Landbrautina, ef tekin verður í þjóðvegatölu, enda þótt ég búist við, að þar sé um nokkra sanngirniskröfu að ræða. En Landbrautin hefir undanfarin ár fengið mjög ríflegan styrk úr ríkissjóði, sem gæti máske komið nokkuð á móti því; sem hv. frsm. gat um, að um þennan veg færi ferðamannastraumur upp að Heklu. En eins og vegamálastjóri benti á, þá tel ég þennan ferðamannastraum alls ekki næga ástæðu til að taka þennan veg í tölu þjóðvega.

Af öðrum vegum vildi ég helzt minnast á Tjörnesveginn. Hv. frsm. meiri hl. gat þess, að vegamálastjóri teldi líklegt, að sú leið mundi hagkvæmust fyrir framtíðina; og mér virðist allt benda á, að svo muni vera. Þarna er í raun og veru alls ekki um nema tvær leiðir að ræða. Sá vegur, sem nú er í þjóðvegakerfinu, getur að flestra dómi alls ekki orðið það framvegis, a. m. k. ekki svo að gagni komi fyrir héruðin. Um Reykjaheiði er það að segja, að hún er óskaplega snjóþung og mun talsvert erfitt í mörgum stöðum að vega hana. En annað er þó verra, — að sú leið liggur um óbyggð. Ef ætti að stytta þá leið með því að láta brautina liggja frá Sæluhúsmúla og norður að Fjöllum og um Kelduhverfi, þá mundi fara að verða skammt á milli vegalengdar um Reykjaheiði og norður fyrir Tjörnes. En ef brautin á að liggja beint frá Sæluhúsmúla og austur að brú á Jökulsá, þá liggja þarna tveir vegir samhliða, annar eftir Kelduhverfi — eftir byggð —, en hinn nokkru framar, eftir óbyggð. Virðist ekki vera neitt skynsamlegt við slíkt skipulag.

Úr því nú á annað borð á að fara að breyta þessum vegalögum svo mikið sem lítur út fyrir, þá sé ég ekki ástæðu til að draga að ákveða það, að vegur skuli lagður norður fyrir Tjörnes. Þar liggur vegur þó um byggð og kemur miklu fleiri að notum af héraðsmönnum heldur en ef hann lægi um Reykjaheiði. Ég hefði því viljað mæla hið bezta með því, að þessi vegur yrði tekinn upp, af þessum ástæðum, ekki sízt fyrir það, að gerð hefir verið nokkur áætlun um vegarstæði þarna og lagningu vegar af talsvert fróðum manni um vegagerð, en það er verkstjóri, sem þar hefir unnið að vegagerð fyrir ríkið á undanförnum árum.

Þegar ég lít yfir þær till., sem meiri hl. ber fram, þá kemur mér það kynlega fyrir sjónir, að þeir skyldu ekki sjá sér fært að taka einnig Úthéraðsveginn alla leið til Unaóss.

Ég get gjarnan bætt því við, að mér virðist rétt að athuga nánar, hvort ekki sé gerandi að taka upp Snæfellsnesbrautina að meira eða minna leyti. Og þess má geta, að metrinn verður þar nokkru ódýrari en mjög víða annarsstaðar.

Að endingu vil ég taka fram, að á undanförnum þingum hefi ég verið algerlega mótfallinn því að taka mjög mikið upp í vegalögin af nýjum vegum. Ég tel svo gífurlega mikið liggja fyrir að framkvæma í vegagerð, að lítt sé hugsandi að dreifa fjármagninu mjög mikið frá þeim vegum, sem nú á að leggja á næstunni. En þar sem svo er nú komið, að allmargir hv. þm. vilja óðir gera breytingar á vegalögunum hver fyrir sig, þá hefi ég fallizt á, að rétt sé að taka nokkrar af þessum brtt. við vegalögin nú þegar, til þess að hafa nokkurn frið fyrir þesskonar till. fyrst um sinn.