03.04.1930
Neðri deild: 70. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2350 í B-deild Alþingistíðinda. (3150)
32. mál, vegalög
Ólafur Thors:
Ég hefi áður flutt sömu brtt. og ég flyt nú við vegalögin. Það var árið 1926, en þá náði hún ekki fram að ganga. Þar sem ég býst við, að um þetta mál verði langar og strangar umr., get ég látið mér nægja með að vísa til þeirrar tölu, sem ég hélt þá, en vil þó bæta því við, að umferðin um veg þennan eykst á ári hverju. Vænti ég svo, að hv. þdm. láti mig njóta þess, að ég þreyti þá ekki með lengri ræðu, og að þeir veiti þessari brtt. minni fylgi við atkvgr.