03.04.1930
Neðri deild: 70. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2358 í B-deild Alþingistíðinda. (3157)

32. mál, vegalög

Þorleifur Jónsson:

Ég þarf ekki að lengja umr. mikið, en ég vildi þó leyfa mér að láta í ljós þakklæti mitt til hv. n. fyrir þann hluta, sem ég á í þessu frv. Ég get ekki annað en þakkað fyrir það, að hún hefir tekið til greina með öllu þá till., sem ég flutti, og því gleðilegra, sem hv. n. hefir orðið að viðurkenna þau rök, sem ég hefi flutt fyrir þessu máli á undanförnum þingum, enda sýnir það sig, að vegamálastjóri er líka orðinn samþykkur þeim rökum. Hann segir í grg., sem prentuð er með nál., að Hafnarvegur í Hornafirði sé sambærilegur við ýmsa aðra vegi, er liggja af þjóðleið til kauptúna, eins og Hvammstangavegur, Skagafjarðarbraut o. s. frv. En þetta er það, sem ég hefi haldið fram undanfarið, og þess vegna er gleðilegt, að það er nú viðurkennt af öllum hlutaðeigendum. Ég vona, að hv. d. viðurkenni þetta einnig og samþykki þessa till., bæði frá mér og hv. n., og því fremur get ég vænzt þess, þar sem mitt sýslufélag hefir ekki hikað við það, þótt þessu máli hafi ekki orðið framgengt, að leggja stórfé fram til þessa vegar. Sýslan hefir síðastl. ár lagt fram til þessa vegar 10 þús. kr. til að byggja upp veginn, hálft framlag móti ríkissjóði. Vegurinn er sem sagt kominn í gott horf, svo að þetta er mest viðhald, sem kemur á ríkissjóð.

Ég vildi aðeins geta þess, að þótt sýslubúar hefðu getað vænzt þess, að þetta mál gengi fram innan skamms, hefir sýslan samt ekki dregið sig í hlé við að byggja upp veginn, svo að það framlag er þá tekið á þurru landi fyrir ríkissjóð, þegar þessi vegur er tekinn í þjóðvegatölu. Fyrst um sinn verður þetta því mjög ódýrt fyrir ríkissjóð, þótt hann hafi viðhald á þessum vegarkafla. Mér þótti rétt að láta í ljós þakklæti mitt til hv. n., af því að hún varð fyrir nokkru aðkasti frá mér og öðrum við l. umr. fyrir langan drátt á málinu undanfarin ár, en mér þótti rétt að þakka það, sem vel er gert. Þarf ég svo ekki að orðlengja meira um þetta mál.