15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2383 í B-deild Alþingistíðinda. (3185)
32. mál, vegalög
Jónas Kristjánsson:
Ég á eina brtt. við þetta frv. og mitt hlutverk verður ekki annað en að leitast við að sýna fram á, að þessi brtt. eigi ekki síður rétt á sér, nema fremur sé, heldur en sumar aðrar af þessum brtt. við vegalögin. Það er Siglufjarðarbraut frá Siglufirði að Fljótárbrú. Þessi leið hefir nokkuð verið rannsökuð, en þó ekki til fulls. Vegamálastjóri telur sjálfsagt, að þessi leið verði tekin í tölu þjóðvega en hann hefir ekki lagt til að svo stöddu, að hún verði tekin inn á þennan dálk, fyrr en hún hefir verið fullrannsökuð, en það verður sennilega á næsta sumri. Það er óhætt að fullyrða, að það er mikil nauðsyn að fá þessa braut. Siglufjarðarkaupstaður hefir vaxið mikið á síðari tímum, en er svo einangraður, að það er miklum erfiðleikum bundið að ná landbúnaðarafurðum frá nærliggjandi sveitum. Eina leiðin á landi er Siglufjarðarskarð, en það er mikil torfæra og tekur ekki undan snjó nema fáa mánuði á sumri. Það er ekki hægt að gera þar akveg, en það hefir verið fundin leið, sem þykir sæmilega gott vegarstæði, sem er 6–7 mánuði upp úr snjó. Þessi leið liggur yfir svokallaðan Skjöld, en er þó ekki svo há sem Siglufjarðarskarð, miklu snjóléttari og því hægt að fara þar meira á bifreiðum og hestum heldur en yfir skarðið. Það eru, eins og kunnugt er, talsverð viðskipti milli Siglufjarðar og ytri hluta Skagafjarðar, Fljótanna, því að Siglfirðingar verða að fá landbúnaðarafurðir sínar þaðan, og bændur í ytri hreppum Skagafjarðar hafa þegar hafið allmikil viðskipti við Siglufjörð og byggt sér þar sláturhús. Þess vegna er mikil þörf fyrir báða aðila að fá þessa braut, en það er einasta leiðin, að hún verði tekin í þjóðvegatölu.
Það virðist ekki fjarri sanni, að þessi braut væri látin sitja fyrir mörgum öðrum vegum, því að Siglufjörður, sem er allstórt kauptún, hefir engan styrk til vega frá hinu opinbera, og um Skagafjarðarsýslu er ekki hægt annað að segja en að hún hafi fengið tiltölulega lítið af vegum tekið upp í þjóðvegatölu, samanborið við aðrar sveitir. Aðalvegurinn er tiltölulega stuttur og fyrir utan þá leið er aðalleiðin út á Sauðárkrók; þetta er tiltölulega miklu styttri vegur en flestar aðrar sýslur hafa fengið. Þess vegna sýnist öll sanngirni mæla með því, að þessi braut verði sem fyrst tekin í þjóðvegatölu, og ætli ekki aðeins að ná að Fljótaárbrú, heldur alla leið inn að Héraðsvötnum; það væri langt um sanngjarnara, en fram á það er þó ekki farið, heldur aðeins að Fljótaárbrú. Ég vil þess vegna mæla með því, að verði hinar brtt. samþ., þá verði þessi látin fljóta með, þar sem meiri sanngirni virðist mæla með því að hún verði samþ. fremur hinum.