15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2387 í B-deild Alþingistíðinda. (3187)

32. mál, vegalög

Dómsmrh:

(Jónas Jónsson): Ég álít, að þetta sé með hinum merkilegustu málum, sem liggja fyrir þessu þingi, og ég lýsi mikilli ánægju minni yfir því, að hv. Nd. hefir orðið samdóma um þetta, og sömuleiðis samgmn. þessarar hv. d.

Það er orðið nokkuð langt síðan breyt. hafa verið gerðar á vegalögunum, þrátt fyrir hinar miklu breyt. á samgöngufyrirkomulagi hér á landi. Þannig hefir orðið stórkostleg aukning á bifreiðaakstri, og þeir vegir, sem áður voru sveitavegir, eru nú orðnir landsvegir, þar sem mjög mikil umferð er og slit. Ég þarf ekki að nefna nema fáein dæmi, ég get t. d. tekið þann vegarspotta, sem liggur upp Mýrasýslu að Hvítá, niður fyrir Norðurárbrú. Eftir þeim vegi fara bifreiðar hundruðum saman á hverri viku frá Borgarnesi um Borgarfjörðinn, en sumpart í sambandi við vegakerfi Snæfellsnessýslu, eða suður yfir Kaldadal, og þá er þessi kafli orðinn landsvegur. Þess vegna er það alveg rétt hjá Alþingi að gera þessa breyt. og alveg rangt hjá vegamálastjóra landsins að leggjast á móti mörgum þessum breytingum; vil ég þess vegna gera það, sem ég get, til að þetta mál nái framgangi, með því að það mælir fyllsta réttlæti með því, þótt ég ekki vilji segja, að þetta frv. sé byggt á svo fræðilegri nákvæmni, að það séu ekki nokkrar líkur til, að þar mætti nokkuð um bæta.

Ég vildi segja fáein orð um eina brtt., frá hv. þm. Snæf., um að bæta í tölu þjóðvega veginum sunnan á Snæfellsnesi og að Sandi. Mér kemur þessi till. nokkuð við, með því að ég vakti eftirtekt á þessu máli í hv. Nd. og bar þar fram ósk um það; að þessi vegur væri líka tekinn í þetta vegakerfi, en Nd. sá sér ekki fært að samþykkja þetta, svo að till. var felld þar. Ég get aðeins tekið það fram, að ég hefi haft lítilsháttar afskipti sem landsk. þm. af því, sem kalla mætti brýr á þessum vegi. Í Snæfellsnessýslu liggur Ölduhryggur, um 25 km. langur melhryggur, frá Straumfjarðará vestur að Staðastað. Þetta er sjálfgerður bílvegur frá náttúrunnar hendi, er það vantaði brú á Straumfjarðará, til þess að koma honum í samband við brautina vestur yfir Kerlingarskarð. Þegar ég var síðast í kosningaleiðangri á þessum slóðum, kynntist ég þessu máli, og beitti mér þá fyrir því, ásamt fleirum þar, að Straumfjarðará yrði brúuð; bættist þá við vegakerfi sýslunnar um 30 km., og er það austasti parturinn, sem hér er talað um að taka í þjóðvegatölu. Ég ætla svo aðeins að bæta því við það, sem hv. þm. Snæf. sagði um málið, að eftir þeim reglum, sem Alþingi hefir aðhyllzt í vegamálum, þá er þetta vegur, sem fyrr eða síðar verður óhjákvæmilega tekinn í þjóðvegatölu. Það er vegur, sem er lagður á milli kauptúna yfir tiltölulega slétt land, og alveg eins og fyrstu símarnir voru réttilega eða ranglega lagðir á milli kauptúna landsins, eins er enginn vafi á því, að þessi vegur er algerlega réttmætur. Hann er nú kominn inn í Staðarsveitina, og með því að gera einar tvær brýr, er hann kominn yfir blómlegar byggðir þar á Snæfellsnesinu. Ég hygg ennfremur, að svona um stundarsakir mætti notast við ruðning í kringum Snæfellsjökul, þar sem þurrt er, og þá væri búið að koma kauptúninu á Sandi í samband við Borgarnesveginn og þar með við allt vegakerfi landsins. Ég álít þess vegna, að Nd. hafi gert rangt í að fella þennan veg niður, af því að hann heyrir undir þær sanngjörnu kröfur, sem hv. d. annars hefir byggt á í vegamálum, en á hinn bóginn veit ég, að ekki verður hægt að leggja starf í það á næstu árum að gera upphleyptan veg þarna, en ég hygg, að þetta svæði muni verða bílfært á næstu árum, með því að gera smábrýr, og svo verður að gera vegarstúfa, þar sem mest liggur á, og ruðning. Vil ég í þessu sambandi benda á, að vegur hefir verið ruddur yfir Kerlingarskarð, svo að þar er nú bílfært, sem engum kom til hugar að fara með bíl áður en sú umbót var gerð á veginum.

Ég hefi viljað styðja þessa brtt. hv. þm. Snæf., með því að skýra frá, hver sanngirniskrafa hér er á ferðum. En þótt ég sé brtt. í sjálfu sér fylgjandi, tel ég Snæfellinga að engu bættari með því, að allir hinir vegirnir séu settir í hættu með samþykkt hennar nú einn hinna síðustu daga þingsins. Af þessum ástæðum óska ég að sitja hjá við atkvgr., þar sem ég er annarsvegar með veginum, en tel hinsvegar vonlaust, að frv. gangi fram, ef brtt. verða samþykktar. Ég vil taka undir það með hv. þm. Snæf., að þetta sé einn af þeim vegum, sem á að komast í þjóðvegatölu, ekki aðeins að Búðum, heldur allur vegurinn. Næst þegar vegalögunum verður breytt, tel ég sjálfsagt, að þessi vegur verði tekinn með. Skal ég taka það fram til að sýna áhugann vestra, að bændur hafa lofað talsverðu af vinnugjöfum til vegarins, gegn framlagi ríkissjóðs og sýslunnar. Þótt ég hafi ekki vald til að segja um þetta fyrir hönd stj., þar sem ég er ekki atvmrh., þykir mér þó líklegt, að á næsta sumri verði eitthvað stutt að byrjun þessarar vegalagningar, ef það fer eins og ég hygg, að bændur leggi fram eitthvað af dagsverkum og sýslan sinn skerf. Áhugi héraðsbúa fyrir þessu máli sýnir, hversu gott mál hér er á ferðinni.