12.03.1930
Neðri deild: 51. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í B-deild Alþingistíðinda. (32)

1. mál, fjárlög 1931

Sveinn Ólafsson:

Ég á tvær brtt. við þennan kafla fjárl., sem nú er til umr., en mun þó ekki fjölyrða mikið um þær, því að það mun hafa litla þýðingu, þar sem svo fáir áheyrendur eru viðstaddir, en þeir hv. þm., sem fjarstaddir eru, geta auðvitað ekki tekið tillit til, hvað sagt er, þegar þeir vita ekki um málin.

Fyrri brtt. mín er undir tölulið XVIII. á þskj. 260 og er við 15. gr. 7. b. Það er nýr liður, sem gengur út á það, að 1000 kr. verði veittar til amtsbókasafnsins á Seyðisfirði, en með því skilyrði, að safnið verði starfrækt í samráði við sýslunefnd Suður-Múlasýslu og bæjarstjórn Neskaupstaðar. Þessi skilyrði eru hin sömu og á síðasta þingi, en þetta safn á nokkuð sérstæða sögu, og skal ég víkja lítið eitt að henni. Um nokkurra ára skeið hefir það verið svo, að fjárveiting til þessa safns hefir fallið niður, þar til á síðasta þingi, að hún var tekin upp að nýju. En þessi fjárveiting hefir verið felld niður um leið og styrkurinn til annara amtsbókasafna hefir verið hækkaður, eins og t. d. safnanna á Akureyri og Ísafirði. Það virðist þó engin ástæða fyrir því, að þetta safn hefir verið gert að hornreku, því að þegar amtsbókasafnið gamla var afhent Seyðisfjarðarkaupstað, var það gert að skilyrði, að það yrði starfrækt í samráði við sýslunefnd Suður-Múlasýslu og bæjarstjórn Neskaupstaðar. Þetta var sameiginlegt safn fyrir Austuramtið, eins og nafnið bendir til, þar sem það heitir bókasafn Austuramtsins, og ætti því að njóta sömu hlunninda og önnur slík söfn.

Ég ætla svo ekki að fjölyrða frekar um þetta, því að síðasta þing lagði yfir málið blessun sína, og eins vona ég, að fari nú.

Þá á ég aðra brtt. á þskj. 260, við 22. gr., og er það nýr liður, sem gengur út á það, að ríkið gangi í ábyrgð fyrir allt að 100 þús. kr. láni fyrir samvinnufélag Eskfirðinga, til kaupa á fiskiskipum, enda nemi lánið eigi meiru en ¾ af kaupverði skipanna fullbúinna til fiskveiða. Lánið skal tryggt með sjálfskuldarábyrgð félagsmanna og ábyrgð Eskifjarðarhrepps og skal forstöðumaður félagsins og annar endurskoðandi samþykktir af ríkisstjórninni.

Þessi málaleitun frá samvinnufélaginu hefir legið fyrir hv. fjvn., en mér er ekki kunnugt um, hvernig hún leit á málið, en þar sem hún hefir ekki borið þetta fram, leyfði ég mér að gera það.

Þetta félag er stofnað eftir síðasta nýár og eru í því 52 menn. Er aðaltilgangur þess að koma upp traustum skipum, og er það ekki lítið áríðandi, þar sem útvegur er aðalatvinnuvegurinn þarna eystra. Til þessa tíma hafa þarna verið notaðir úreltir vélbátar, sem flestir eru orðnir gamlir, en sjósókn hinsvegar lengri nú en áður. Um félagsmenn er það að segja, að nokkrir þeirra eru sæmilega efnum búnir, en hafa gengið í félagið til þess að styrkja það. En yfirleitt eru þessir menn efnalitlir, svo að þeir geta ekki á eigin spýtur styrkt útveginn, en þeir efnaðri hafa því hlaupið undir bagga til að styrkja félagsskapinn. Fyrirætlun félagsins er sú, að kaupa 4 vandaða og góða vélbáta, en þetta fé, sem ég fer fram á að ríkið gangi í ábyrgð fyrir, á því aðeins að veitast, að þessi ¼ hluti, sem félagsmenn leggja fram, sé fyrir hendi, en það tel ég tryggt með aðstoð efnamannanna. Til frekara öryggis er svo bakábyrgð Eskifjarðarhrepps, og er sú ábyrgð fengin og liggur hér fyrir skriflega frá hreppsnefndinni. Við þetta bætist svo sjálfsskuldarábyrgð félagsmanna, og get ég fullvissað hv. þdm. um, að hún ein ætti að vera nægileg trygging, að því er snertir efnamennina, því að mér er persónulega kunnugt um getu þeirra. Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða frekar um þetta mál, en vil þó benda á það, að ríkið hefir tekið á sig öllu stærri ábyrgð en þetta, sem þó var samskonar, en þar á ég við ábyrgðina fyrir Samvinnufélag Ísfirðinga. Að því leyti er hér líkt ástatt og þar, að útvegur er eina atvinnugreinin, sem þarna getur þrifizt, því að landbúnaður og iðnaður er þar sama og enginn og verzlun mjög lítil. Ennfremur vil ég benda hv. þdm. á það, að hér eru fyrir hendi stofnlög félagsins ásamt umsögn hreppsnefndarinnar og þeim skilyrðum, sem hún hefir sett fyrir ábyrgðinni, og ættu þeir þá að geta séð, að þessi ábyrgð sé nokkurnveginn trygg.

Ég ætla svo ekki að tala frekar um þetta mál né fjárlögin að þessu sinni, en vil aðeins taka það fram, að hér liggja fyrir ýmsar brtt., sem ég á erfitt með að skilja, einkanlega þar sem ég álít, að í þetta sinn eigi menn að vera sérstaklega varkárir við afgreiðslu fjárlaganna.