16.04.1930
Efri deild: 80. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2393 í B-deild Alþingistíðinda. (3200)

32. mál, vegalög

Jón Jónsson:

Hv. 3. landsk. hefir nú bent á ýmsa galla á þessari lagasmíð, og það gerði ég líka í gær. En þó get ég ekki fallizt á það með honum, að vegurinn til Búða sé rétthærri en aðrir þeir, sem teknir eru upp í frv. Vegamálastjóri hefir ekki verið því meðmæltur, að vegur þessi væri tekinn upp í lögin, og eins er um ýmsa aðra vegi, sem hv. Nd. samþ. að taka upp. Vegamálastjóri bendir aðeins á í bréfi til samgmn. Ed., að Búðavegurinn geti komið til greina hliðstætt þeim vegum, sem teknir hafa verið upp í frv., þvert á móti till. hans.

Það er sjáanlegt, að með þeim breyt., sem nú hafa verið gerðar á vegalögunum, er gengið inn á allt annað „plan“ en tíðkazt hefir áður um vegalagningu ríkisins, þar sem nú eru teknir upp í lögin ýmsir innanhéraðsvegir.

En augljós afleiðing af því verður sú, að óumflýjanlegt er fyrir þingið að skaffa ríkissjóði nýja tekjustofna, eins og t. d. benzínskattinn, sem nú liggur fyrir þinginu, til þess að vega upp á móti þessum aukna kostnaði. Og það er von mín, að samþykkt þessa frv. reki á eftir þinginu að finna slíka tekjustofna sem allra fyrst.

Það, sem fær mig til að greiða atkv. með frv. út úr hv. d., þótt ég sé óánægður með það að mörgu leyti, er það, að ég skal játa, að sumir þessir vegir eiga tilverurétt og eru nauðsynlegir. Þess vegna sé ég mér ekki fært að hindra framgang frv. — En sem sagt, ég fylgi frv. í þeirri von, að ríkissjóði verði séð fyrir nýjum tekjustofnum til þess að standast kostnaðinn við þessar auknu vegagerðir. En hinu verður ekki mótmælt, að það er hneyksli að taka ekki tillit til þess, sem vegamálastjóri leggur til í þessum málum.