04.04.1930
Neðri deild: 71. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2414 í B-deild Alþingistíðinda. (3235)

213. mál, skurðgröfur

Frsm. (Jón Sigurðsson):

N. hefir orðið sammála um að leggja til, að frv. þetta verði samþ. með nokkrum breyt.

Eins og ég drap á við 1. umr. þessa máls, er hér að ræða um mjög mikið verkefni. Geysiflæmi víðsvegar á landinu bíða eftir framræslu. Frv. það, sem hér liggur fyrir, miðar að því að styðja menn til að koma á stað félagsframkvæmdum á þessu sviði.

Skal ég nú minnast á þær breyt., sem n. vill láta gera á frv. Fyrst og fremst getur hún ekki fallizt á að tiltaka í frv. 150 þús. kr. upphæð, sem greiða skuli árlega úr ríkissjóði. N. er það ljóst, að ef svo er haldið áfram að binda ríkissjóði árleg útgjöld með sérstökum lögum, sem gert hefir verið síðustu ár, þá verður þess ekki langt að bíða, að þingið hafi lítið eftir af tekjum ríkissjóðs til að ráðstafa hvert árið. Hún álítur líka enga nauðsyn á að binda árlega fjárveitingu til skurðgröfukaupa við þessa upphæð. Það kom í ljós, að hún hafði verið valin alveg af handahófi. Það mun hafa vakað fyrir þeim, sem frv. sömdu, að keyptar væru allmargar skurðgröfur á einu eða tveimur árum. N. vill fara hægar á stað, en síga heldur á. Það hafa þegar verið keyptar tvær stórar skurðgröfur hingað til lands, sem nú er fengin reynsla á. Er það Skeiða- eða Flóaskurðgrafan, sem kostað mun hafa um 60–70 þús. kr., og fljótandi skurðgrafan í Skagafirði, sem kostaði rúmar 30 þús. kr. Nú mun ætlunin að reyna nýjar tegundir, sérstaklega þýzka tegund af minni skurðgröfum, sem Sigurður Sigurðsson búnaðarmálastjóri álítur, að muni kosta 10–15 þús. kr. N. vill ekki ýta undir, að keyptar séu margar slíkar skurðgröfur meðan ekki er vitað, hvernig þær reynast.

Það eru eflaust til margar aðrar tegundir, og er því rétt að leita fyrir sér smátt og smátt. Í Skagafirði hefir rekstrarkostnaður við skurðgröfuna orðið tiltölulega mjög lítill, og er óhætt að gera ráð fyrir, að hann verði ekki meiri við minni skurðgröfur. Virðist því n. vera tiltekin óhæfilega há upphæð í frv. Leggur hún til, að engin upphæð sé ákveðin, en stj. sé heimilað að kaupa eina skurðgröfu á ári og að nægilegt fé sé ætlað í fjárl. til rekstrar þeirra, að þeim hluta sem frv. ákveður.

Önnur breytingin, sem n. leggur til að gerð verði á frv., er þess efnis, að áveitufélög falli undir ákvæði þess ásamt framræslufélögum. Virðist ekki rétt að veita öðrum þeim aðila stuðning, en útiloka hinn. Eins og ég minntist á við 1. umr. þessa máls, getur líka sumstaðar hagað svo til, að áveita og framræsla fari saman.

Þá vill n. láta taka fram í frv. að viðhalds- og vátryggingarkostnaður heyri undir starfrækslukostnaðinn. Hinsvegar leggur hún til, að ríkið beri eitt þann kostnað, sem leiðir af flutningi skurðgrafnanna á milli vinnustaða. Það má búast við, að talsverðum erfiðleikum verði bundið að flytja skurðgröfurnar á milli héraða eða sveita, og er hætt við, að það mundi draga úr mönnum að fá þær, ef þeir þyrftu að byrja á að greiða mikið fé í flutningskostnað. Telur því n. vænlegra til framkvæmda, að ríkið greiði allan flutningskostnað, en að fleira falli aftur undir þann árlega starfrækslukostnað, sem þeir, er unnið er fyrir, greiða 2/3 hluta af.

Sé ég svo ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frekar. Vil aðeins geta þess, að samkv. þessum breyt., sem n. leggur til að gerðar verði á frv., leggur hún til, að nafn þess verði: „Frv. til laga um skurðgröfur ríkisins og rekstur þeirra“.