12.02.1930
Efri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2420 í B-deild Alþingistíðinda. (3253)

78. mál, áfengislög

Flm. (Ingvar Pálmason):

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er brtt. við áfengislöggjöfina, sem samþ. var á þinginu 1928. Sú löggjöf var að vísu mjög vel undirbúin, en ég vænti þess, að það sé einlægur vilji allra þm. að gera þau lög þannig úr garði, að þau verði að sem beztum notum. Nú hafa komið fram við reynslu á þessum lögum nokkrir misbrestir við framkvæmd þeirra. Sérstaklega hefir það komið í ljós, að sú reglugerð, sem sett var samkv. þessum lögum, hefir ekki nægilegan stuðning í lögunum sjálfum, svo að hægt sé að beita refsiákvæðum hennar.

Brtt. lúta að því, að færa í lag það, sem ábótavant er í þessu efni. Ennfremur fylgjast með í þessu frv. nokkrar aðrar veigaminni brtt., sem eigi hefðu verið bornar fram sérstaklega, en úr því að hreyft var við þessum lögum á annað borð, þá þótti rétt að taka þær með.

Þeir, sem að frv. standa, leggja mikla áherzlu á, að þær brtt., sem máli skipta, nái fram að ganga; annars gefst tækifæri til að athuga það í nefnd, hvaða till. koma helzt til greina. Eftir þeim undirtektum og fylgi, sem þessi lög fengu á Alþingi 1928, vænti ég, að hv. þdm. taki þessu frv. vel. Það er ekki ástæða til að fara inn á einstakar till. við þessa umr. En ég vænti, að frv. verði vísað til 2. umr. og allshn.