25.01.1930
Neðri deild: 5. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1123 í B-deild Alþingistíðinda. (327)
12. mál, lántaka fyrir ríkissjóð
Ólafur Thors:
Ég tók eftir því, að hæstv. fjmrh. sagði, að vextirnir væru 1½% hærri en vextir Englandsbanka á hverjum tíma. Mig furðar stórlega á þessu og vil spyrja hæstv. ráðh., hvort honum hafi ekki mismælzt. Mér er kunnugt um, að í haust var leitað hófanna um lán til handa íslenzku félagi í enskum bönkum, og skyldi lánið vera án veðsetningar.
Hagkvæmustu kjörin, sem fáanleg voru, voru þau, að vextirnir yrðu 5%, en þó aldrei lægri en vextir Englandsbanka. Mér er talsvert kunnugt um lántökur og lánskjör í enskum bönkum og þekki ekkert dæmi þess, að lántakandi greiði meira en 1% hærri vexti en Englandsbanki tekur. Mig undrar, að íslenzka ríkið skuli þurfa að sæta þessum okurkjörum, og endurtek þá spurningu mína til hæstv. ráðh., hvort þetta hafi ekki verið mismæli. Ég tel það ekki vansalaust, ef ríkið þarf að lúta að því að taka lán með þessum kjörum.