07.02.1930
Efri deild: 16. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í D-deild Alþingistíðinda. (3287)
23. mál, dýrtíðaruppbót
Jón Baldvinsson:
Ég ætla aðeins að láta ánægju mína í ljós yfir því, að hæstv. fjmrh. hefir borið fram þessa till. nú í ár. Ég minnist þess, að í fyrra fluttum við tveir þm. samskonar till., og þá var ekki allur flokkur hæstv. ráðh. henni samþykkur, og því vil ég þakka honum þetta, þótt þessi till. gangi ekki eins langt og skyldi. — Annars væri það mjög æskilegt, að betri skipun komist á launagreiðslur embættismanna en nú er. Það hefir gengið svo frá því 1925, að hvert þingið eftir annað hefir vísað þessu máli frá, sennilega af ótta við, að kjósendur yrðu æfir, ef embættismenn nytu réttlátra launakjara. Annars get ég upplýst það, að í Nd. mun frv. vera á ferðinni, sem miðar að umbótum í þessu máli. Málið verður ekki leyst með öðru en því, að annaðhvort verði skipuð milliþinganefnd eða að stjórnin undirbúi málið.
Þessi orð vildi ég láta fylgja þessari till., því að mínum dómi er sú meðferð, sem þetta mál hefir sætt, þinginu til stórrar vansæmdar.