12.03.1930
Neðri deild: 51. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í B-deild Alþingistíðinda. (33)
1. mál, fjárlög 1931
Lárus Helgason:
Það er að vísu til lítils að standa upp til að mæla með till. sínum, þar sem svo fáir hv. þdm. eru viðstaddir, en til þess að halda venjunni mun ég þó gera það að þessu sinni.
Ég á hér tvær brtt. við þennan kafla fjárl. Sú, sem ég ætla fyrst að víkja að, er á þskj. 260, XV. brtt., og miðar hún að því, að 1.500 kr. styrkur verði veittur til að halda uppi húsmæðrafræðslu í Vík í Mýrdal. Það hefir verið svo nokkur undanfarin ár, að þarna hefir farið fram ungmennafræðsla, sem orðið hefir að miklu gagni, og héraðsbúum myndu það vonbrigði mikil, ef hún yrði nú felld niður. Ég hefi hinsvegar ekki farið fram á hærri upphæð en þessa, af því að ég veit, að ríkissjóður hefir í mörg horn að líta, en styrkurinn þyrfti raunar að vera meiri, ef þetta ætti að geta komið að fullum notum, en úr því að ekki er farið fram á hærri upphæð, þætti mér það harla óeðlilegt, ef þetta væri fellt. Það er nú svo ástatt á Suðurlandi, að engin slík kennsla fer fram frá Hornafirði til Reykjavíkur, önnur en þessi, og það er ekki lítill munur á því, hvort ungar stúlkur verða að fara út úr héraðinu, til Reykjavíkur; og gefa með sér ærið fé, eða að þær geti fengið fræðslu innanhéraðs og sparað þannig ferðakostnað og uppihald að mestu. Ég sé ekki ástæðu til að ræða þessa till. frekar, en vona, að hún nái samþykki hv. deildar.
Þá á ég XXVII. brtt. á sama þskj., og gengur hún út á það, að veittar verði 5000 kr. til áveitu og sandgræðslu í Meðallandi. Eins og hv. þdm. mun kunnugt frá því í fyrra, var hafin þarna starfsemi til að sporna við meiri skemmdum en orðið hafa þarna af sandfoki, en það hefir gengið svo, að til þessa tíma hefir fjöldi bæja farið í auðn sökum þess. Í fyrra var svo hafizt handa, og það, sem gert hefir verið til að afstýra þessu böli, hefir þegar borið mikinn árangur. Tilætlunin er sú, að fyrir þessa upphæð verði unnið á næstkomandi vori, og þetta er byrjun, sem ekki má hætta, sökum þess að þá eyðileggst það verk með öllu, sem þegar er unnið. Pálmi Einarsson ráðunautur hefir rannsakað þetta mál og gert áætlanir viðvíkjandi verkinu, en það skjal, sem álit hans sýnir, lá fyrir hv. fjvn. í fyrra, en er hinsvegar svo langt, að ég býst ekki við, að hv. þdm. fýsi að heyra það, enda hefi ég það ekki við hendina. Ég verð að segja það, að ég álít ekkert nauðsynlegra en að bjarga þessari sveit, sem hefir orðið fyrir þessari eyðileggingu, en ekkert hefir verið látið í té af ríkinu. Mér finnst það því eðlilegt, að þessi upphæð megi haldast í fjárl., og það svo eðlilegt, að ég fæ ekki skilið annað en að hv. þdm. láti hana standa þar áfram. Ég vil leggja áherzlu á það, að þessi styrkveiting er hreinasta lífsnauðsyn, ef sveitin á ekki að leggjast í auðn, en þær framkvæmdir, sem unnar eru, miða að því að koma í veg fyrir allar þær verstu skemmdir, sem orðið hafa og vofa yfir, ef ekki verður að gert.
Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta mál frekar, þar sem svo fáir eru nú viðstaddir, en mun ef til vill ræða þessar brtt. nánar síðar, ef mér gefst tilefni til þess.