06.02.1930
Neðri deild: 16. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í D-deild Alþingistíðinda. (3306)
37. mál, björgunar- og eftirlitsskip við Vestmannaeyjar
Magnús Guðmundsson:
Mér skildist af ræðu hæstv. dómsmrh., að hann eiginlega vísaði alveg frá hugsuninni um það, að annaðhvort Óðinn eða Ægir gæti verið til taks að inna af hendi björgunarstarfsemi við Vestmannaeyjar, jafnvel þótt maður hugsaði sér bát eins og Hermóð til að gæta netanna síðari hluta vetrar. Þetta kom að vísu ekki alveg skýrt fram hjá hæstv. ráðh., en mér finnst eðlilegt, að manni detti þessi lausn í hug, á meðan ekki fengist sérstakt skip til þessarar gæzlu, sem gæti gefið sig eingöngu við henni.
Ég get vel skilið, að í ár sé þetta ekki hægt, af því að það stóð svo á, að Ægir þurfti að fara utan, en ef menn ganga út frá, að það verði ekki næsta ár, þá sýnist mér það alls ekki geta verið útilokað, að Ægir, sem að sögn er útbúinn með björgunartækjum, geti tekið þetta starf að sér. Ég er sannfærður um það, að hann getur, ásamt þessari starfsemi, haft allmiklar gætur á landhelginni meðfram strandlengju Rangárvallasýslu og langt austur eftir með Skaftafellssýslu. Mér þykir líklegt, að óhætt sé að gera ráð fyrir, að hann geti varið ströndina alla leið frá Ingólfshöfða til Reykjaness. Mér fannst það vera dálítið undarlegt í ræðu hæstv. ráðh. að vísa þessu alveg frá, því að það er bert af því skeyti, sem hv. þm. Vestm. las upp, að Eyjamenn álíta þetta ekki óframkvæmanlegt. Þess vegna vil ég gera þá fyrirspurn til hæstv. dómsmrh., hvort hann álíti ekki, að það sé neinn vegur til að hafa þetta svo í bili.
Hæstv. ráðh. talaði um blaðagreinar í sambandi við þetta mál, og finnst mér það harla undarlegt, af því að af hálfu hans blaða hafa komið mjög ósanngjörn ummæli, og hvað það snertir, að ekki hafi verið leyfðar andmælagreinar í þeim blöðum, þá vil ég minna hæstv. ráðh. á það, að í blaði, sem hann hefir verið mjög við riðinn, hefir mér verið neitað um rúm fyrir svar við árásargrein, svo að hæstv. ráðh. getur ekki tekið eitt blað út úr, sem hafi sérstöðu í þessu.
Um kaupin á Þór skal ég segja það, þótt ég hafi ekki lesið kaupsamninginn um hann nýlega, að ég get ekki betur munað en að kaupin á Þór færu fram með þeirri hugsun, að ekki skyldi niður falla gæzlan við Vestmannaeyjar, og eftir því, sem hv. þm. Vestm. sagðist frá í ræðu sinni, þá virðist hann hafa góð gögn fyrir sínu máli, enda ætti öllum að vera það ljóst, að þegar tekið er upp á svona nýjung og hún reynist vel, þá er ekki hægt að kippa henni af aftur.
Hæstv. ráðh. hélt, að það þyrftu að vera tvær umr. um þessa till., og kvaðst ekki geta tekið hana gilda nema því aðeins, að tvær umr. færu fram um hana. Ég vil þá spyrja hæstv. ráðh.: Vill hann þá taka tvær umr. gildar í hvorri deild? (Dómsmrh.: Það má athuga það). Ég er þá hræddur um það, að hæstv. ráðh. við athugun, sem hann kannske lætur aðra framkvæma, komist að þeirri niðurstöðu, að það sé ekki nóg. En ég hefi staðið í þeirri meiningu, að þessi till. væri fram borin til þess fyrst og fremst að fá að vita um hug hæstv. stj. í þessu máli, og líka til að vita um það, hvort ekki mundi hægt að komast af nú allra fyrst með þann skipastól, sem við höfum nú, án þess að Vestmannaeyingar yrðu sviptir þeirri vörn, sem þeir hafa haft. Það má líka benda á það, að nú liggur frv. fyrir þinginu um að byggja nýtt skip, og á meðan það frv. liggur fyrir þinginu óafgreitt, er ekki við að búast, að nein till. komi fram, því að það má vel byggja þetta skip, sem nú liggur fyrir frv. um, með það fyrir augum, að það sé vel hæft til að hafa gæzlu við Vestmannaeyjar.
En ástæðan til þess, að ég stóð upp í þessu máli, var sagan, sem hæstv. ráðh. hefir sagt margoft hér á þingi, að það hafi kostað ríkissjóð 25 þús. kr. að láta varðskipið skreppa stutta stund frá Vestmannaeyjum, í þeim tilgangi að elta togara, og yfirgefa veiðarfærin, — því að þetta er ekki nema hálfsögð sagan; en þótt hér væri alveg rétt frá sagt, þá er ekki hægt að finna nokkur sterkari rök fyrir nauðsyn Eyjamanna til þessara varna en einmitt það, að það hlýzt 25 þús. kr. skaði af því að varðskipið víkur sér frá í einn eða tvo daga. Og úr því að Vestmannaeyingar bíða slíkt tjón á þessum tíma, er þá ekki sjálfsagt að láta þá hafa þessa vernd? En það má geta þess í sambandi við söguna, að það var aðeins um tjón á veiðarfærum að ræða, en ekki á mannslífum. — Það var svo um samið við Vestmannaeyinga, að skipið mætti bregða sér frá, austur með söndum, til að elta landhelgisbrjóta, gegn því, að þeir fengju bætur eftir mati fyrir þær skemmdir, sem verða kynnu á veiðarfærum þeirra vegna burtfarar skipsins. Skaðinn var metinn 25 þús. kr., en ríkið fékk með sektum sökudólganna 50–60 þús. kr. í sinn sjóð. — Svona er sagan rétt sögð, og verði farið að segja hana aftur, skal ég vera tilbúinn að standa upp og leiðrétta, ef með þarf.