04.03.1930
Neðri deild: 43. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í D-deild Alþingistíðinda. (3325)

37. mál, björgunar- og eftirlitsskip við Vestmannaeyjar

Lárus Helgason:

Í raun og veru finnst mér ekki svo mikið skilja í millum nefndarhlutanna, einkanlega eftir að ég heyrði ræðu hv. frsm. minni hl. Hann játaði, að komið gæti til mála að selja Hermóð og kaupa annað skip. Eftir því, sem ég hefi heyrt, er tæplega forsvaranleg gæzla við Eyjarnar eins og hún er núna, því að þar þarf að vera skip, sem getur svo að segja lagt út í hvaða veður sem er á hverjum tíma; mér finnst áhugi hv. þm. Vestm. í þessu efni eðlilegur, því að hann þekkir vel, hvers þarf með á þessum stað, og mér finnst það einnig eðlilegt, að Vestmannaeyingar sætti sig ekki við að fá verra skip en Þór var til gæzlunnar. Við, sem búum við hafnleysisstrendurnar á Suðurlandinu, getum einnig notið góðs af björgunarstarfi þess skips, sem er haft við Vestmannaeyjar, því að þegar bátarnir fara út á sjóinn, er aldrei hægt að vita, hvort þeir komast í höfn án hjálpar, því að svo fljótur er sjórinn að brima á þessum slóðum. Þegar símasamband er nú komið á, geta menn, ef með þarf, símað til Eyja og beðið um hjálp. Þetta á við alla leið til Víkur, vestur í Þorlákshöfn. Þetta m. a. mælir öflugt með því, að gott skip sé við Vestmannaeyjar um vetrarvertíðina.

Ég stóð upp til þess að láta hv. þdm. vita, að mín skoðun er sú í þessu máli, að björgunarskipið megi ekki vera verra en Þór. Hér er ekki um neitt skrum eða hálfvelgju að ræða, því að þetta er hið mesta alvörumál, þar sem margoft getur verið að ræða um líf fjölda manna víðsvegar af landinu, er sjómennsku stunda í Vestmannaeyjum og víðar þar í grennd. svo að þetta er ekki einungis snertandi Vestmannaeyjar, heldur gervallt Suðurland. Þetta mál er einnig að mínu áliti stórmikið hagsmunamál, því að aflavon er miklu meiri, ef stöðugur bátur er hafður um þessar slóðir, til þess að vera til taks ef hætta er á ferðum. Verður sjósókn miklu meiri og öruggari, ef slíkur bátur er alltaf viðbúinn til hjálpar, þegar með þarf. Þetta vil ég einnig benda hv . þdm. á að athuga, er þeir ganga til atkv. um málið.