03.02.1930
Neðri deild: 12. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1126 í B-deild Alþingistíðinda. (334)
12. mál, lántaka fyrir ríkissjóð
Héðinn Valdimarsson:
Ég vil líka gera nokkrar aths. við frv. þetta, sérstaklega vegna þess, hve kjörin eru léleg og til hve stutts tíma lánið er tekið. Lánveitandinn ræður því alveg, hvort lánið verður framlengt nú í september næstk. Eftir það, sem nú er komið á daginn um hag Íslandsbanka, getur vel farið svo, að erfitt verði að fá lánið framlengt.
Þá var það ekki rétt hjá hv. frsm., að hámarksvextir lánsins væru 6%. Þeir geta orðið miklu hærri, ef vextir Englandsbanka hækka. Ef þeir t. d. kæmust í 10%, yrðu vextir af þessu láni 10%.
Ekkert hámark er á vaxtakjörunum, en aftur á móti lágmark 6%. Virðist í því efni einnig mikið hallað á lántakandann, og skyldu menn þó halda, að tveir frjálsir aðilar semdu, sem báðir hefðu hag af, að samningar tækjust, og því væri engum ókjörum beitt. Virðist mér það ekki hafa verið gætilegt af hæstv. fjmrh. að taka slíkt lán á örðugasta tíma, ekki meiri nauðsyn en rak til þess þá, og byggja á svo stuttu, lausu láni löng lán hjá Búnaðarbankanum og endanlega greiðslu stofnfjár Landsbankans o. fl.