10.04.1930
Neðri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í D-deild Alþingistíðinda. (3341)

363. mál, lækkun vaxta

Bjarni Ásgeirsson:

Ég skal nú vera fáorður um þetta mál, því að ég verð að segja, að þau rök, sem ég hefði viljað bera fram í málinu, eru bæði komin fram hjá hæstv. dómsmrh. og sömuleiðis hjá hv. 1. þm. Reykv. Vil ég aðeins lítillega gera grein fyrir mínu atkvæði eða atkvæðisleysi í þessu máli, því að satt að segja lít ég svo á, að þessi þáltill., þótt falleg sé, sé nokkurskonar markleysa. Ég held, að hv. þm. hefði alveg eins getað skorað á stj. að sjá um, að það yrði gott tíðarfar í sumar, því að mér finnst það alveg hliðstætt. Vextir eru nefnil. nokkurskonar náttúrulögmál, sem engin stj. getur við ráðið, og eins og fram hefir verið tekið, þá er það fátækt þjóðarinnar, sem er orsök þess, að við verðum að búa við óhagstæða vexti; það er ekkert annað en fjárskortur. (GunnS: En er þá ekki rétt að bæta úr fjárskortinum:?). Úr honum verður aðeins bætt með því, að þjóðin verði efnuð. Á meðan hún verður að lifa á bónbjörgum með starfsfé, verður hún að sætta sig við þau vaxtakjör, sem boðin eru á heimsmarkaðinum, og á meðan ekki er hægt að sýna fram á það, að á heimsmarkaðinum sé hægt að fá lán, sem borið geti lægri vexti innanlands en áður, er þetta allt út í bláinn. Það hefir líka verið sýnt fram á það, að ríkisstj. sem slík hefir ekkert vald yfir vöxtunum; það er bankaráðið og bankastjórnin, sem ráða þessu sameiginlega. Stjórnin getur ekki einu sinni sett bankaráðið frá; það er Alþingi, og Alþingi verður þá að kasta af sér bankaráðinu, ef það vill hafa áhrif á vextina.

En ég skal aðeins fara fáum orðum um það, sem gerir það, að við Íslendingar verðum að bera hærri vexti en aðrar þjóðir; ég hefi þegar getið þess að nokkru, en það er hin mikla veltufjárþörf okkar, sem hækkar sífellt þá vexti, sem við verðum að greiða, og það var einmitt það, sem hv. flm. sagði. Það verður að auka veltuféð á þann hátt, að það nýja fé verði ekki dýrara en áður, en það er a. m. k. sýnt af þeim lánsumleitunum, sem farið hafa fram af stj. hendi, að það fékkst ekkert lán með þeim kjörum, að stj. þyrði að taka það til að veita því fé til atvinnuveganna.

Ég skal líka benda hv. flm. á, í sambandi við það, sem hann talaði um að lækka vexti, að ég álít það alveg óforsvaranlegt, á meðan peningaástandið er í þeirri óreiðu eins og hjá okkur í vetur, og nú kemur til kastanna að sjá það í sumar, hvort Ísland hefir það lánstraust erlendis, að það geti fengið það ódýrari lán, að hægt sé að lána það út með lægri vöxtum. Það verður að koma fram, hvort við Íslendingar getum orðið þeirrar vaxtalækkunar aðnjótandi, sem komin er fram í heiminum.

Annars vil ég lítillega snúa mér að orsökinni til þess, að Landsbankinn hækkaði vexti í haust. Ég skal þá fyrst geta þess, að þá var komið svo hér, að venjulegir bankavextir voru orðnir lægri en í fjöldamörgum öðrum löndum álfunnar, eins og upplýst hefir verið í umr. Í Þýzkalandi voru vextir þá 10%, og í Finnlandi eitthvað svipað. Afleiðingin af því varð vitanlega sú, að allir þeir menn, sem lánsfjár þurftu með og lánstraust höfðu erlendis, reyndu að losa sig við það fé og leituðu til bankanna hér. Það var svo með marga, að þeir höfðu ekki notað allt sitt lánstraust hér, vegna þess að þeir höfðu lánstraust erlendis. En eftir það að vaxtahækkunin skall á erlendis, runnu þeir á fé sitt hér, en bankar svara ávallt slíku með því að hækka sína vexti.

Auk þess er það svo, að Íslendingar eru djarfari og stórtækari þegar vel árar, og það hefir verið svo, að ráðizt hefir verið í meiri framkvæmdir hér á landi en áður, svo að þrátt fyrir hinn mikla útflutning í fyrra, vantaði mikið á, að hann nægði fyrir þeim vörum, sem Íslendingar sóttu til útlanda til að byggja upp með sín atvinnufyrirtæki. Og Landsbankinn leit þá svo á, að nauðsynlegt væri að „bremsa“ þetta, því að þótt margt sé gott og nauðsynlegt af því, sem hafizt er handa með, þá eru þó takmörk fyrir því, hvað Íslendingar hafa ráð á að leggja út i, þar sem búskapur Landsbankans sýndi það, að allar hans innieignir voru étnar upp, vegna þess að menn höfðu lagt í meira en þeir höfðu efni á. Hann áleit því skyldu sína að hækka vextina, til að vinna á móti þessu. Hitt er rétt, að það mátti með nokkrum sanni finna að því, að vextirnir voru ekki lækkaðir jafnskjótt og þeir voru lækkaðir erlendis, en það hefir verið skýrt frá því, að aðalástæðan var það fyrst og fremst, að þeir voru ekki lækkaðir nema um ½%, þótt vextir erlendis lækkuðu meira, að vaxtamálin voru ekki komin í fastan farveg; var jafnvel haldið, að þeir myndu hækka fljótt aftur, og því þótti ekki ráðlegt að lækka vextina meira en gert var. Að hinu var vitanlega stefnt, ef vextir héldu áfram að lækka erlendis, að þá yrði haldið áfram hér, en áður en að því kæmi, skall á bankafarganið hér.

En ég geri ráð fyrir því, að þegar bankinn verður opnaður aftur og lag komið á peningamarkaðinn, lækki Landsbankinn aftur sína vexti, eftir því sem hann sér sér fært. En eins og bankanum er nú komið, þá hefir það vald verið lagt í hendur bankastj. og bankaráðs að ráða fram úr þessu, og ég verð að segja það, með fullri virðingu fyrir Alþingi og hv. 2. þm. Rang., að bankaráðið mun hafa fyllilega eins glöggt auga fyrir því, hve langt megi ganga í því að lækka vexti. (GunnS: Jú, jú, það hefir nú sýnt sig). Bankinn hefir a. m. k. sýnt það, að vextirnir voru ekki of háir, því ef þeir hefðu verið það, þá hefðu bankarnir grætt meira. Það er vitanlegt um útkomu Íslandsbanka, hvernig hún hefir verið, að hann hefir ekki fénast á þessum háu vöxtum. Það hefir ekkert verið sagt um Landsbankann, en það er vitanlegt, að hann hefir ekki grætt of mikið, þar sem hann hefir tapað mestu af sínum varasjóði og innskotsfé ríkisins, og meðan svo er ástatt, þá er ekkert vit í því að hleypa öðru eins góðæri sem nú er framhjá sér án þess að reyna að tryggja hag sinn. Það var hv. 1. þm. Skagf., sem sagði, að bankarnir ættu að safna í sjóði í góðu árunum. En það geta þeir aðeins með því að halda vöxtunum það háum, að nokkur afgangur geti orðið af ársrekstrinum. — Og það verða þeir líka að gera til þess að bera vondu árin, þegar þeir verða að taka miklu skakkaföllin, sem illæri hefir ávallt í för með sér, þar sem atvinnuvegirnir eiga undir jafnmikla örðugleika að sækja. Þess vegna verður, hvernig sem á þetta er litið, ekki hægt að ásaka bankana fyrir það, að þeir hafi haft of háa vexti; reynsla þeirra og „status“ sýnir það. Það er líka allt annar aðili, sem á að snúa sér til en landsstj., því að þótt hv. 1. þm. Skagf. segi, að stj. ráði, þá getur samt bankaráðið farið eftir sinni skoðun, hvað sem ríkisstj. segir. — Af þessum ástæðum segi ég það, sem ég sagði í upphafi ræðu minnar, að mér finnst þessi þáltill. svo mikil markleysa, að ekki sé rétt að greiða atkv. um hana.