10.04.1930
Neðri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í D-deild Alþingistíðinda. (3343)

363. mál, lækkun vaxta

Magnús Guðmundsson:

Ég verð að segja það fyrir mig, að ég sé mér ekki annað fært en að greiða atkv. með þessari þáltill., sérstaklega af því, að hæstv. dómsmrh. hefir lýst yfir því, að hann sé ekki vonlaus um að geta fengið vextina lækkaða. Lítil von er líka von, og ég vil ekki drepa hana.

Mér finnst líka, að till. sem þessi mundi herða á hæstv. stj. í þessu efni, og mér finnst engin ástæða til fyrir hv. 1. þm. S.-M. að vilja sporna við þeirri hvatningu.

Hæstv. dómsmrh. minntist á hin miklu töp bankans, og gat þess í fyrri ræðu sinni, að Landsbankinn hefði tapað um 10 millj. kr. (Dómsmrh.: Ég sló því fram). En það er ekki það, sem skiptir máli hér, heldur hitt, hve mikið hann hefir borgað af því tapi, því ef allt er borgað, þarf hann ekki að hækka vexti fyrir það.

Mér þótti hv. þm. Mýr. taka nokkuð djúpt í árinni, þegar hann sagði, að það væri sama að skora á stj. um þetta og að skora á hana að sjá um gott tíðarfar. Ég er hræddur um, að hv. þm. hafi ekki munað eftir því, að núverandi forsrh. gerði það sama á þinginu 1927. Hann skoraði sem sé á þáv. stj. að lækka vextina, og sú till. er orðuð hér um bil alveg eins og þessi. Það er þess vegna nokkuð hart í sakirnar farið gagnvart hæstv. forsrh. að komast þannig að orði. (BÁ: Það stóð öðruvísi á þá). Ég ætla ekki að deila neitt við hv. þm. Mýr. um það, en vil aðeins benda hv. þm. á, að hann tók allt of djúpt í árinni.

Hæstv. dómsmrh. sagði, að bankaráðið væri einrátt í þessu efni; en það er ekki. Yfir bankaráði og bankastjórn stendur fjmrh. samkv. bankalögunum, ef ég man rétt, og það er ómögulegt að ganga út frá því, að það vald sé ekkert nema yfirskin. Það var einnig auðheyrt á orðum hæstv. dómsmrh., að hann er ekki vonlaus; hann sagði, að það væri lítil von, en ég segi: Lítil von er líka von. Þá von vil ég ekki drepa, og greiði því atkv. með till.