05.04.1930
Neðri deild: 72. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í D-deild Alþingistíðinda. (3387)

154. mál, milliþinganefnd

Magnús Guðmundsson:

Það er ef til vill ekki rétt að vera að hafa á móti því, að mþn. sé skipuð í þetta mál, eins og hv. flm. vilja, en ég fyrir mitt leyti held, að það verði bezta ráðið til að fresta málinu um óákveðinn tíma. Dreg ég það af því, hvernig farið hefir um þau frv., sem milliþn. hafa undirbúið, því að það má heita hreinasta undantekning, ef hæstv. stj. fæst til að flytja þau. Ég átti sjálfur sæti í mþn. í skattamálum. Afgreiddi sú n. þrjú frv., en ekki fékkst hæstv. stj. til að flytja neitt þeirra, heldur urðu nefndarmenn að gera það sjálfir. Eitt af þessum frv. hefir þegar náð samþ. þessarar deildar, og ég er viss um það, að frv. fara öll með blásandi byr í gegnum þingið, ef hæstv. stj. bregður ekki fæti fyrir þau.

Máli eins og þessu á helzt að vísa til stj. Sérstaklega finnst mér, að maður eins og hv. frsm., sem hefir líf stj. í hendi sér, ætti að hallast að því og gera málið um leið að lífs- eða dauðaatriði fyrir stj. En hv. frsm. stendur nær stj. en hann lætur og er alls ekki hlutlaus, eins og hann segir. Það sýnir þetta bezt, að hann vill draga stj. undan ábyrgðinni og fela mþn. málið, því að þá verður hægara um vik með að afsaka stj., ef illa fer.

Ég held sem sagt, að það sé mest vinátta við þetta mál að vísa því til stj. og játa hana hafa hitann í haldinu út af því, en losa hana ekki undan ábyrgðinni með því að fela mþn. málið. En það er ekki mitt að gefa hv. frsm. ráð, enda ræður hann, hvað hann gerir með það.

Það er svo um tryggingarmálin, að þar er margt, sem fagkunnáttu þarf til. Stjórnmálaþekking kemur því þar að litlu liði. En mér skildist svo á ræðu hv. frsm., að hann óskaði eftir, að þessi n. yrði skipuð þm. Ég held, að það sé bezt að láta hæstv. stj. sjálfráða um það, hvernig hún kemur þessum málum fram, enda er sagt, að hún hafi nú um langan tíma haft sérstakan mann með sérþekkingu á þessu sviði til að vinna að undirbúningi þeirra. Væri því hið mesta mein, ef athugun tryggingarmálanna yrði tekin af honum og falin þm.

Það er fjarri mér að vilja ýfast við þessu máli, og því mun ég ekki bera fram dagskrártill. mína, þar sem hv. frsm. leggur á móti því. Ég er meðmæltur rannsókn málsins, þó að ég líti öðrum augum en hv. frsm. á það, hvað því er fyrir beztu.