05.04.1930
Neðri deild: 72. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í D-deild Alþingistíðinda. (3393)
154. mál, milliþinganefnd
Magnús Jónsson:
* Það er augljóst, að það tefur hreint ekkert fyrir þessu máli, þó að því sé frestað núna, ef það verður tekið fyrir seinna í dag. Ég flæktist inn í umr., en nú er ég boðaður á fund, sem ég þarf nauðsynlega að sækja, og mér þykir mjög leitt, ef þetta mál yrði útrætt hér á meðan.