12.03.1930
Neðri deild: 51. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í B-deild Alþingistíðinda. (34)
1. mál, fjárlög 1931
Magnús Guðmundsson:
Ég held ég megi til með að leysa forseta úr vanda og taka til máls nú þegar, þar sem enginn hv. þdm. kveður sér hljóðs, en í þetta sinn mun ég í mesta lagi tala eina eða tvær mínútur. Ég á hér brtt. á þskj. 260, við 15. gr., í þá átt, að Guðmundi Friðjónssyni skáldi verði veittar 1.500 kr. til utanfarar. Eins og sést á því, hvernig brtt. þessi er orðuð, hefir samþykkt hennar ekki aukin útgjöld í för með sér, því að hér er aðeins ráðstafað á þennan ákveðna hátt nokkrum hluta þess fjár, sem hvort sem er á að fara til utanferða. Það er svo um þetta skáld, sem er nú okkar bezta skáld, að hann hefir aldrei farið utan, en langar til þess, eins og við er að búast. Meðan ekki koma andmæli fram, sé ég ekki ástæðu til að segja fleiri orð um þessa till.