15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í D-deild Alþingistíðinda. (3419)

154. mál, milliþinganefnd

Frsm. meiri hl. (Jón Baldvinsson):

Hv. 3. landsk. er óánægður með orðalag till. og finnst það vera einstrengingslegt. En ég álít það kost á till., að hún tiltekur þann tíma, sem n. á að hafa skilað störfum. Ég álít sjálfsagt, að mþn. hafi lokið störfum sínum fyrir næsta þing, enda hefi ég heyrt, að í fórum stj. muni vera til einhver drög að þessari tryggingalöggjöf, sem mþn. gæti ef til vill haft gagn af. Hv. 3. landsk. segir, að þessi mál hafi verið athuguð, þegar hann var ráðh. Það verður þá eflaust hægt að ná til þeirra athugana nú. En mesta verkið verður að undirbúa frv. að tryggingalöggjöf samkv. 1. málsgr. till., þótt vitanlega vel geti verið, að eitthvað þurfi um að bæta, þegar mþn. kemur fram með sínar till. fyrir þingið.