15.04.1930
Sameinað þing: 8. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í D-deild Alþingistíðinda. (3433)

327. mál, lóðir undir þjóðhýsi

Flm. (Benedikt Sveinsson):

Málið má heita útrætt. — Ég skil ekki almennilega, hversu illa hv. 2. þm. G.-K. hefir tekið því, sem ég sagði. Ég hefi aldrei dregið einstakan mann inn í þessar umr. og datt það ekki í hug. En þar sem farið var að nota nafn ákveðins manns til andróðurs framgangi málsins, komst ég ekki hjá að svara, án þess að ég legði neinn dóm á hann eða starfsemi hans. Mér fannst hvorttveggja óvarðandi till. um þjóðhýsi. Ég vildi aðeins sýna fram á, hver fjarstæða væri, að þessum manni yrði það mikill sársauki, ef þessi staður endilega yrði ekki aðsetur hans í framtíðinni og K. F. U. M. Eftir þeirri kynningu, sem ég hefi af séra Friðriki, sem er ættingi minn, þá er ég alveg sammála hv. 2. þm. G.-K., að tæplega geti óeigingjarnari mann. Þess vegna er því síður ástæða til að ætla, að hann geri þetta að kappsmáli. Ég er einnig sammála hv. þm. um það, að þessar samningatilraunir eru skammt á veg komnar ennþá, og ennfremur, að ekki sé enn vonlaust um góða lausn á málinu. Þessi till. er borin fram til vonar og vara, af því að dómkirkjupresturinn hefir látið í ljós, að nú þegar liggi við borð að reisa hús á lóðinni. En ég byggi enn á þeirri von, að til eignarnáms þurfi ekki að taka. — Ég skal geta þess, að áður en við bárum fram till. á þinginu í fyrra um þetta efni, höfðum við tveir þm. grennslazt dálítið fyrir um vissar eignir í bænum, hvort þær væru falar, einmitt til þess að benda K. F. U. M. á, hvort það mundi vilja taka þær eignir í staðinn fyrir þessa. En þessi eign, sem nefnd hefir verið hér, var ekki föl þá. Ég tek þetta fram til þess að benda á, að í raun og veru er engin misklíð milli okkar hv. þm. um þetta mál, þegar frá eru skornir smá-angar, sem alltaf geta komið fram í ræðum manna og hægt er kannske að festa hendur á, ef menn vilja. Ég er alveg græskulaus í þessu máli og lít á það aðeins frá því sjónarmiði, að farið verði með þennan stað á þann hátt, sem þjóðinni má verða til heilla, að þau hús, sem þarna verða reist, verði sem samstæðust að fegurð og sem hagkvæmust þjóðhýsi. Menn munu nú kannske segja, að öllu sé bjargað að því er til fegurðar kemur með því, að hér sé skipulagsnefnd og ýmsir snillingar, sem fjalli um hús, sem einstakir menn reisa.

En ég vil biðja hv. þm., þegar lítið er að gera, að ganga hér út á svalirnar og horfa beint í norður og vita, hvernig þeim lízt á húsin, sem standa í röð gagnvart alþingishúsinu, — hvort þeim finnist þau feikna prýði við Austurvöll.

Annars er það leitt, hversu gálauslega hefir verið fleygt burt opinberum eignum fyrr á tímum og til þessa dags. Nú til dæmis þarf ríkissjóður að kaupa dýrum dómum part af kirkjugarði Reykjavíkur, sem lyfsali nokkur náði tangarhaldi á með öllu ókeypis fyrir nærfellt 100 árum. Meira að segja þarf bærinn víst einnig að kaupa aftur undir götu hús í horninu á þessum sama kirkjugarði, sem hann leyfði, þvert ofan í mín mótmæli í bæjarstjórn fyrir fimmtán árum. Sannarlega er tími til þess kominn, að borg þessi stækki eftir skynsamlegu skipulagi og að hverjum einstaklingi verði ekki leyft að rázka með fegurstu staðina í miðbænum eins og verkast vill.