13.02.1930
Neðri deild: 23. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1132 í B-deild Alþingistíðinda. (345)
12. mál, lántaka fyrir ríkissjóð
Fjmrh. (Einar Árnason):
Ég þarf ekki að vera margorður um þessa till., sem hér liggur fyrir. — Ég er vitanlega sammála hv. flm. um það, að sjálfsagt sé að reyna að komast að sem beztum kjörum, þegar lánið verður tekið, og ástæðan til þess, að eru hefir ekki verið tekið þetta fasta lán, sem heimild er fyrir, er sú, að stj. hefir enn ekki getað fengið þau lánskjör, sem hún hefir þótzt geta unað við. Hinsvegar skildist mér á hv. flm., að honum ekki vera sérstaklega mikil alvara með þessa till., að hann væri dálítið í vafa um það, hvort hann léti hana ganga til atkv., og ég get raunar vel trúað því, vegna þess að þegar þær heimildir voru veittar stj., sem liggja á bak við þetta frv., held ég, að engum manni hafi dottið í hug að setja skilyrði um, að það mætti ekki taka lán til eins og annars fyrirtækis, sem þingið hefði ákveðið, nema því aðeins, að svo og svo góð vaxtakjör fengjust. Ríkið þarf að taka lán til ýmsra framkvæmda, og þá sýnist það ekki ná nokkurri átt að koma eftir dúk og disk og segja, að það megi ekki taka lánið nema með einhverjum ákveðnum kjörum, sem kannske fást alls ekki. Ég er sammála um, að æskilegt væri að taka ekki lánið nema með svo góðum skilyrðum, sem um getur, en það er ekki hægt að binda það svo fast með lögum.
Hv. þm. leiddi lítillega inn í ræðu sína Íslandsbankamálið, en ég ætla ekki að fara út í það. Mér finnst, að ekki þurfi að taka það upp aftur. Ég vil aðeins geta þess, af því hv. þm. var að tala um vettlingatök í fjármálum ríkisins, að ég held, að hv. þm. hefði átt að láta til sín taka fyrr um það, að ekki væri tekið vettlingatökum á þeim málum, því að þær tilraunir, sem núv. stj. hefir gert viðvíkjandi lántöku í útlöndum, hafa fært henni heim sanninn um það, að landið bíður talsverðan hnekki út af vettlingatökum fyrrv. stj. á fjármálum ríkisins, því að alltaf er rekið framan í okkur enska lánið frá 1921, með 10% vöxtum. (MJ: Alltaf hækkar það í meðferð hæstv. stj.). Ég get útvegað yfirlit yfir þetta, gert af reikningsfróðum mönnum. (MJ: Var ekki hv. þm. (EÁ) stuðningsmaður þeirrar stj., sem tók það?). Ég nefni þetta af því, að hv. þm. N.-Ísf. virðist allt hafa gengið vel áður.
Þá voru nokkrar fyrirspurnir viðvíkjandi útvegun á láninu, og var það fyrsta spurningin, hverjar vonir stj. hefði um lán og vaxtakjör. Ég vildi aðeins skýra frá því, að á síðasta ári var fjármálum erlendis svo varið, að það virtist ekki blása byrlega til að fá góð lán, eins og hv. þm. líka minntist á, og þess vegna var ekki á síðastl. ári hægt að fá þau kjör, sem stj. gat unað við, og þess vegna fékk hún þetta bráðabirgðalán, sem hér er um að ræða. Síðan bráðabirgðalánið var tekið, hefir stj. ekki leitað neitt fyrir sér um lán í útlöndum og hefir hugsað sér að láta þær öldur jafna sig, sem risu hér seint í sumar eða haust. — Annars hefir hún menn þar á verði, sem líta eftir þessum hlutum og gera aðvart, þegar líkindi eru til þess, að hægt væri að komast að sæmilegum kjörum.
Þá spurði hv. þm. um það, hvað myndi verða komizt af með mikið lán. Það er ekki hægt að segja ákveðið um það, en heimildin í þessu frv. er alveg hin sama og í þeim lögum, sem eru í gildi; það var tekin í fyrra á þinginu sú upphæð, sem sýndist vera það, sem nauðsynlega þurfti, ef ráðast ætti í allar þær framkvæmdir, sem lög stóðu til.
Þá spurði hv. þm. um það, hvort hægt myndi að fá lán, sem hægt væri að borga eftir 5 ára bil. — Um það er ómögulegt að segja; þesskonar kemur aldrei til mála fyrr en komnir eru á stað samningar um lántöku. Ég geri ráð fyrir, að þegar samningar verða gerðir um lánið, verði reynt að ná samningum um, að það megi borga lánið fyrr en á síðasta gjalddaga. — Um lánstraustið út á við þýðir ekki að spyrja, en það hefir ekkert á það reynt, og ég held, að það geti jafnvel enginn neitt um það sagt sem stendur, a. m. k. ekki neitt ábyggilegt, og mér fyrir mitt leyti dettur ekki í hug að fara að gefa neinar yfirlýsingar um það, af því að ég sé ekki, að það sé mögulegt.