13.02.1930
Neðri deild: 23. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í B-deild Alþingistíðinda. (347)

12. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Magnús Guðmundsson:

Ég mundi ekki hafa kvatt mér hljóðs, ef hæstv. fjmrh. hefði ekki gefið tilefni til þess, með því að segja, að jafnan, þegar verið væri að sækja um lán erlendis, væri slengt framan í þá, er um lánið vildu semja, enska láninu með sínum 10% vöxtum. Mér þykir það ekki óeðlilegt, að það sé hægt að gera illt með að slengja þessu framan í þá, ef þeir eru svo heimskir að viðurkenna það. En það vita allir, að umsamdir vexti, eru 7%, og ég ætla, að það fari svo, að þetta lán reynist betra en mörg önnur, sem við höfum tekið, og það er af því, að við höfum grætt á gengismuninum. Það var tekið £500.000 lán og afföll 16%. Við fengum þess vegna útborguð £425.000 og þegar lánið var tekið, stóð pundið í 26—27 kr. hvert einasta pund, og allt var þetta notað til að borga skuldir, sem fallnar voru á erlendis og áttu að greiðast strax. En þegar við nú borgum lánið, þurfum við ekki að borga nema rúml. 22 kr. fyrir hvert sterlingspund, vegna þess að £ hefir staðið svo erlendis nú lengi, og af því leiðir það, að þótt við þurfum að borga öll þessi £, þá höfum við samt fengið fleiri íslenzkar krónur en við þurfum að borga lánið með aftur. Öll afföll eru horfin og það er nokkuð mikil upphæð umfram, og ég er hér um bil viss um það, að ef sá munur væri settur á vöxtu, þá yrði það svo álitleg upphæð, að ef hún væri dregin frá þeirri, sem fer í vaxtagreiðslur, þá yrði ekki meira eftir en sem svaraði því, að lánið hefði verið tekið með rúmlega 6% vöxtum.

Ef hæstv. ráðh. er að taka lán erlendis og hefir ekki svo mikla þekkingu á málinu, að hann geti sýnt fram á, hvernig þessu er varið, þá er ekki von, að vel fari. Það var á þinginu 1921 gengið í skrokk á stj. og spurt, hvers vegna hún tæki ekki lán til þess að græða á gengismuninum; það var, meira að segja, gert í blaði hæstv. forsrh. Hann var alltaf að tala um þetta lánleysi stj., að hún vildi ekki taka neitt lán. En svo þegar lánið er tekið og með sömu kjörum og önnur ríki urðu að taka á þeim tíma, snýr þetta blað auðvitað sjálfu sér í hring og heldur því fram, að þetta lán sé svo óskaplegt okurlán, sem ekki sé hægt að búa undir. En það eru ýms önnur lán, sem við höfum tekið, sem eru miklu dýrari, þegar tekið er tillit til gengismunarins.

Hæstv. ráðh. bauðst til að útvega útreikninga fróðra manna, sem sýndu, að við þyrftum að greiða 10% vöxtu af láninu. Ég skora á hæstv. ráðh. að gera þetta, og þá má ekki gleyma að taka tillit til gengismunarins, því að það er mikill munur að fá fjórum krónum meira fyrir hvert £, sem við fáum að láni, heldur en við þurfum að borga það með. Það er sá stóri liður, sem hann og ýmsir aðrir hafa gleymt, og það getur maður, sannast að segja, kallað að fara heldur grunnt í sakirnar. — Það má vel vera, að ég taki þetta betur í gegn síðar, en af því að ég er óviðbúinn núna, læt ég það bíða, nema ég mun auðvitað svara hæstv. ráðh., ef hann reynir að hrekja þetta.