08.04.1930
Sameinað þing: 3. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í D-deild Alþingistíðinda. (3477)

85. mál, útibú Landsbanka Íslands í Vestmannaeyjum

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Hæstv. fjmrh. hélt því fram, að Landsbankinn væri einráður gerða sinna. Ég lít aftur á móti svo á, að úrskurðarvaldið sé í höndum stj. samkv. 43. gr. landsbankal., þar sem talað er um, að bankinn megi setja á stofn útibú með samþykki bankaráðsins og að fengnu samþykki ráðh. Og þar sem hér er um stofnun að ræða, sem ríkið á, fæ ég ekki betur séð en að það sé þingsins að gera till. í þessum efnum. Mér finnst það óþarfi af hæstv. stj. að sleppa tökunum af ráðstöfunum sem þessum.

Með þessari till. er skorað á hæstv. stj. að hlutast til um það, að Landsbankinn stofni útibú í Vestmannaeyjum. Ef hæstv. fjmrh. treystir sér ekki til að hafa neinn vilja í þessu máli, get ég ekki við hann ráðið, en samkv. venju undanfarinna þinga, því að hér er um stofnun að ræða, sem Alþingi ræður yfir, hefi ég flutt till. mína í þessu formi. Ég hefi alltaf skilið 43. gr. landsbankal. svo, að ríkisstj. hefði úrskurðarvaldið í þessum efnum, og það er ekki nema eðlilegt, að hún fari eftir till. Alþingis.