08.04.1930
Sameinað þing: 3. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í D-deild Alþingistíðinda. (3484)

153. mál, einkasala á steinolíu

Flm. (Haraldur Guðmundsson):

Ég þarf ekki miklu að svara hæstv. ráðh., því að hann sagði í rauninni alls ekki neitt, sem svara þarf. Hann var t. d. að tala um, að það breytti ekki olíuverðinu, þó ég flytti þessar ræður á hverju ári og þar fram eftir götunum. Það má því strika allan meginkaflann úr ræðu hæstv. ráðh. út, því að í honum var ekkert, sem nokkru máli skiptir í þessu sambandi.

Hæstv. ráðh. sagði, að athugun hefði farið fram á olíuverðinu, og skýrsla um það hefði borizt stjórnarráðinu. Í eldhúsdagsumr. lofaði hæstv. ráðh., að skýrslan skyldi verða lögð fyrir þingið til athugunar, en hæstv. ráðh. hefir enn ekki efnt það loforð. Þykir mér næsta kynlegt, að hv. þm. skuli ekki gefast kostur á að sjá þetta plagg. Síðan segir hæstv. ráðh., að engin krafa hafi komið frá fulltrúum sjávarútvegsins um þetta. Þess er heldur ekki að vænta, þar sem hæstv. ráðh. hafði lofað að birta Alþingi skýrsluna. Það ætti að vera óþarfi að krefjast þess af ráðh., að hann birti skýrslu, sem hann hefir látið semja fyrir opinbert fé og lofað að birta. Skýrslan hlýtur að vera ætluð þinginu. Formaður Fiskifélagsins gerir einungis athugun á olíuverðinu og gefur skýrslu um það, en gerir hinsvegar engar till. Slíkt er stjórnar eða þingmanna, að fengnum þeim upplýsingum, sem skýrslan geymir. Það er blátt áfram ósæmilegt af hæstv. ráðh. að stinga svo þessari skýrslu í skúffuna. Það má alltaf segja sem svo, að hv. þm. séu svo sporléttir, að þeir telji ekki eftir sér að ganga upp í stjórnarráð og líta á skýrsluna þar. En þar er því til að svara, að það hefir hingað til verið venja, að þegar um mikilsverðar upplýsingar er að ræða í einhverju máli, sem þingið hefir til meðferðar, þá hafa þær verið prentaðar og lagðar fyrir þingið með þingskjölunum. En í stað þess að fylgja þessari sjálfsögðu reglu, þá lætur hæstv. ráðh. nægja að vísa mér og öðrum sporléttum þm. upp í stjórnarráð. Ég skal benda hæstv. ráðh. á, að eftir ummælum hans í fyrra, þá var ástæða til þess að ætla, að hann myndi einmitt leggja slíka skýrslu prentaða fyrir þingið í vetur. En hæstv. ráðh. hefir algerlega vanrækt það, og lítur út fyrir, að hann misskilji mjög aðstöðu sína sem atvmrh.

Hæstv. ráðh. sagði, að ég skyldi beina gífuryrðum mínum um olíuverðið í aðrar áttir. Þessu er nú fyrst og fremst því að svara, að ég hefi ekki viðhaft nein gífuryrði. Ég hefi beðið eftir því að fá upplýsingar frá hæstv. ráðh. um olíuverðið áður en ég færi að ámæla steinolíufélögunum sérstaklega, enda þótt mér og öðrum sé það vel kunnugt, að þau skammta verðið á olíunni eftir sínum geðþótta og leggja á hana eftir því, sem þau sjá sér fært. En hve mikil álagningin er, átti hæstv. ráðh. einmitt að upplýsa með rannsókninni.

Ég vil svo að lokum beina tveim fyrirspurnum til hæstv. atvmrh., sem ég vænti, að hann svari um hæl. Fyrri spurningin er þessi: Telur hæstv. ráðh., að það fyrirkomulag, sem nú er á olíuverzluninni og sem blaðið Tíminn hefir lýst, muni verða heillavænlegt til frambúðar? Í öðru lagi: Er hæstv. ráðh. sammála blaðinu Tímanum um það, að erlent auðfélag eitt hafi hér leppfélag til þess að afla þessu erlenda auðfélagi sama réttar hér sem íslenzkur ríkisborgari væri? Mér væri mikil þökk að fá svar við þessum spurningum. Ef hæstv. ráðh. er sammála blaði sínu, þá er vant að sjá, hvernig hann getur samt staðið á móti tillögu minni.