15.04.1930
Neðri deild: 83. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í D-deild Alþingistíðinda. (3507)

387. mál, lyfjaverslun

Flm. (Haraldur Guðmundsson):

Eins og hv. þm. munu muna, var frv. um lyfjaverzlun flutt í Ed. í fyrra, en náði ekki fram að ganga. í grg. þess frv. og umr. um það var sýnt og sannað, að lyfjaverð hér er ákaflega hátt, og sást þetta m. a. af bréfi Læknafélagsins og umsögn landlæknis. Málið fékk þá einkennilegu afgreiðslu í Ed., að því var vísað frá í trausti þess, að stj. léti endurskoða lyfjataxtana. Ég veit ekki, hvort sú endurskoðun hefir enn farið fram, en víst er, að lyfjaverðið er enn fram úr hófi hátt.

Þar sem ekki er líklegt, að hugur manna hafi breytzt svo síðan í fyrra, að slíkt frv. fengist samþ. nú, þykir okkur flm. rétt að fela stj. að athuga þetta mál og líkindi fyrir verzlunarbótum á þessu sviði.

Ég verð að segja, að breyt. þær, sem orðið hafa á lyfjaverzlun hér upp á síðkastið, eru ekki líklegar til að lækka verðið. Hér var ein lyfjabúð áður, en nú eru þær fjórar. Engin þörf er á svo mörgum lyfjabúðum, en kostnaður og mannahald verður auðvitað því meira sem búðirnar eru fleiri.

Í grg. þáltill. er sagt frá ritgerð, sem nýlega hefir birzt eftir Vilmund Jónsson lækni á Ísafirði um þessi efni. Hann kynnti sér þetta mál allrækilega í síðustu utanför sinni. Dómur hans er sá, að lyfjaverzlun og lyfjatilbúningur hér sé rekið eftir aðferðum, sem eru orðnar úreltar. Lyfjatilbúngur er nú víða rekinn með fullkomnu stóriðjusniði, lyfin blönduð og búin í söluumbúðir í stórum, fullkomnum verksmiðjum, þar sem öruggt eftirlit er haft með gæðum og réttum tilbúningi. Hér eru efnin keypt að og lyfin síðan blönduð og tilbúin á hinn dýrasta og „primitivasta“ hátt.

Nú skortir mig alla sérþekkingu til þess að dæma um þessi efni. En lausn málsins verður að byggjast á rannsókn og kunnugleika. Ef hægt væri að fá lyfin tilbúin og í söluumbúðum beint frá verksmiðjum erlendis, mætti án efa gera þau miklu ódýrari og um leið tryggja betur gæði þeirra en nú er mögulegt. Ég treysti mér ekki til að bera fram ákveðnar till. um fyrirkomulag lyfjaverzlunar, og tel því, að rétta leiðin sé, að hæstv. stj. kynni sér þetta og leggi till. sínar fyrir næsta Alþ. á þann hátt, sem henni lízt réttast.