15.04.1930
Neðri deild: 83. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í D-deild Alþingistíðinda. (3509)
387. mál, lyfjaverslun
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Ég sé ekki ástæðu til að segja margt til svara hæstv. dómsmrh. En ég get ekki annað en undrast það, hversu daufar undirtektir till. fékk hjá honum. Í fyrra taldi hann ekki vafa á, að verðið væri hærra en það þyrfti að vera. Enda virðist ekki vera neitt fyrirmyndarástand t.d. hér í Reykjavík, að fjórar lyfjabúðir keppa hver við aðra, þar sem tvær nægðu fyrir skömmu og ein mundi að öllum líkum duga, ef fyrirkomulaginu væri breytt.
Annars var það ekki tilætlunin að ræða um fyrirkomulag verzlunarinnar, heldur einungis að mælast til þess, að ríkisstj. taki málið til athugunar, og henni er síðan ætlað að benda á þær leiðir, sem henni þættu líklegastar til umbóta. Því eru óþarfar allar dylgjur um, hvað við hv. 2. þm. Reykv. „meinum“ með till. Við meinum ekkert nema það, sem í henni stendur. En leiði rannsókn það í ljós, að breytingu þurfi að gera, þá er það að sjálfsögðu skylda stj. að bera fram tillögur um það á næsta þingi.
Hæstv. dómsmrh. sagði, að lyfjataxtanum hefði verið breytt þann veg, að nema mundi 30–40 þús. kr. sparnaði fyrir Reykvíkinga. En ég er jafnnær fyrir því. Ég veit ekki, hve mikil umsetningin er hér í bænum, svo að ég geti séð, hve mörgum prósentum lækkunin nemur. En almenningur hefir ekki orðið var við nokkra verulega verðlækkun á lyfjum. Það veit ég með vissu.