17.04.1930
Neðri deild: 85. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í D-deild Alþingistíðinda. (3550)

386. mál, áfengisveitingar í sambandi við alþingishátíðina

Ásgeir Ásgeirsson:

Þessari till. er ekki beint til forseta, heldur til ríkisstj. En vegna þess, að hv. þm. Borgf. hefir farið hér nokkrum orðum um veizluhöld og beint tilmælum sínum til forseta, eins og rétt er, þá vildi ég svara honum nokkru.

Ég tel, að sá samanburður, sem hv. þm. gerði á veizluhöldum Alþingis og forsætisráðherra, sé ekki alls kostar réttur. Það er ekki líku saman að jafna, þegar forsetar halda veizlu fyrir hönd þingsins og þegar forsrh. heldur veizlu á sínu heimili, þó að þar komi gestir ríkisins. Ég lít svo á, að í þeim veizlum, sem haldnar verða á Þingvöllum og í Reykjavík, séu forsetar fulltrúar Alþingis, en þm. séu þar í rauninni allir gestgjafar. Það væri þess vegna mikið einræði af forsetum að vilja ekki á neinn hátt taka tillit til óska þingmanna um það, hvernig þessar veizlur færu fram.

Ég skal því lýsa því yfir fyrir mitt leyti, að ég mun taka fullt tillit til óska meiri hl. þingsins í þessu efni, hvort sem þær falla saman við mitt persónulega álit eða ekki. Það er svo í þessu máli, að þar er ekki um hvítt og svart að ræða, eins og virðist mega ætla af ræðum sumra manna, heldur um möguleika, sem geta báðir komið til greina og þingið á sjálft úrslitaatkvæði um.

Þó að nú sé áliðið þingtímans, þá stendur hv. flm. opin sú leið að safna undirskriftum utan þingfunda, og það mun verða tekið fullt tillit til þess þingmeirihluta, sem þá kemur í ljós. En fari svo, að engin áskorun berist okkur forsetum, þá munum við skilja það á þann veg, að haga skuli þessum veizlum svo sem forsetar telji heppilegast bæði gagnvart útlendum mönnum og innlendum, sem veizlurnar sitja, í samráði við alþingishátíðarnefndina og þann óbeina vilja, sem kemur fram í afskiptaleysi þingsins. Ég skal fúslega taka á mig ábyrgðina af því að gera slíkar ráðstafanir, og jafnvel gefa leyfi til að skamma mig einan fyrir þær ákvarðanir, sem teknar verða. Það mun ekki heldur skorta slíkan munnsöfnuð. Það sé ég á því, hvernig ráðizt er á hv. 1. þm. S.-M. með ofsa, þennan líka léttúðuga ungling! Þegar honum, þessum æruverðuga öldungi, sem situr hér við hlið mér, er brugðið um léttúð og hræsni, þá má nærri geta um þá kurteisi, sem sýnd verður forsetum og alþingishátíðarnefnd um það er lýkur.